Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Side 67
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
67
Minning
Ásgeir Jakobsson
Fæddur 3. júlí 1919 — Dáinn 16. janúar 1996
Ég hafði sem ungur maður veitt
athygli sérstökum blaðagreinum
um sjávarútvegsmál, tilskrifum
Ásgeirs Jakobssonar, sent einatt
nálgaðist málefnið frá öðru sjón-
arhorni en almennt var um rætt
eða ritað. Beint var að efninu
komist og án nokkurra vífillengja
sem þá olli frekara umróti, um-
ræðan gleggri og henni gerð betri
skil.
Árið 1973 tók Ásgeir að sér að
sjá um bókasafn Hrafnistu, jafn-
framt því sem hann ritstýrði
Hrafnistubréfinu, hvar megin-
hluti efnis voru viðtöl við aldraða
vistmenn. Hann hafði sérstaka
hæfileika til að ná frarn í viðtölum
sínurn frásögnum þeirra öldruðu
af fortíðinni, svita og erfiði for-
feðranna sem veittu byr til far-
sældar landi og þjóð.
Ásgeir er mér minnisstæður frá
þessuni árum, einkurn fyrir við-
tölin við aldraða sjómenn sem
bjuggu yfir hafsjó af fróðleik og
ómetanleg saga þeirra úr fortíð-
inni væri hvergi skráð, ef Ásgeirs
hefði ekki notið við. I bókasafn-
inu var oft spjallað um mál fortíð-
ar sem síðan leiddu til merkra frá-
sagna á prenti. Fyrirhöfnin virtist
lítil vera og ekki var tímaleysið að
plaga hann. í nokkur ár sá Ásgeir
um og ritstýrði Sjómannadagsblað-
inu sem sjómannasamtökin í Reykja-
vík og Hafnarfirði (Sjómannadags-
ráð) hafa gefið út síðan 1938.
í tilefni 50 ára afmælis Sjómanna-
dagsins 1988 gáfu sjómannasamtökin
út bókina Siglingasaga Sjómanna-
dagsráðs, mikið ritverk, sem Ásgeir
Jakobsson samdi. Þegar hann settist
að ritun þessa verks var úr miklum
gögnum að nioða sem þá höfðu ekki
verið flokkuð og því nokkuð erfitt
um aðgengi gagna allt frá árinu 1935.
Þegar Ásgeir Jakobsson fylgdi
Siglingasögu Sjómannadagsráðs
úr hlaði ritaði hann m.a. eftirfar-
andi:
„Söguna hef ég sett saman eftir
fundargerðabókum fulltrúaráðs-
ins og stjórnar þess og lítið sem
ekki leitað munnlegra heintilda,
enda átti ég sjálfur ærið af þeim í
eigin fórum eftir tuttugu ára náin
kynni af sjómannasamtökunum
og forystumönnum þar. Ekki er
bókin þó algerlega í stíl hefðbund-
inna sagnfræðibóka. Höfundur-
inn hefur leyft sér að skjóta inn
athugasemdum og útleggingum
ófræðimannslegum af sinni nátt-
úru.“
Ásgeir hafði þá náttúru til að
bera að festa á blað ritað mál
sagnfræðinnar svo vakti áhuga og
forvitni á fortíðinni þegar maður
tók bækur hans sér í hönd, enda
rnunu þær skipa sérstöðu í bók-
menntum okkar íslendinga.
Um leið og ég fyrir hönd stjórn-
ar Sjómannadagsráðs þakka Ás-
geiri Jakobssyni góða samfylgd,
vináttu og hollustu við sjómanna-
samtökin og Hrafnistuheimilin,
sendi ég aðstandendum hans inni-
legar samúðarkveðjur.
Guðmundur Hallvarðsson for-
maður Sjómannadagsráðs
V-Æ/'Z/l' cþ/zjzZl'0ZZ/?/Zf/ZZ ZZ/Zl/Z/jzi/'ZÍóÆ'/'
zz
'z<
Z/ZZZ/Z'ZZ
Vélskóli Islands
í húsi Sjómannaskólans