Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Síða 83
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
83
fjögra fiska gildi. Síðan var leitað
meðal byssuskyttanna. Fyrst gekk af
þeim í leik við hann Jón Halldórsson
sem ég fyrr nefndi, minn trúfasti
stallbróðir. Ei vildi það duga. Síðan
kom einn af byssuskyttunum, Micha-
el að nafni, mikill maður að stærð og
krafti. bessir áttu langt þjark sín í
milli, þar til Michael vann, og gaf
kóngur honum tvöfalt. Mikill var
þeirra aðgangur, svo mönnum fannst
skipið skjálfa í þeirra viðureign. Síð-
an urðu margir aðrir leikar framdir
kóngi til skemmtunar. Nokkrir léku
það að sækja smápening með munn-
inum ofan í einn vatnsstamp og halda
sínum höndum aftur á bak. Sumir
hlupu í reiða og af toppi fóru þeir á
hnakka toppstaginn ofan eftir og
margt annað fleira.“
Hollenskum skipstjóra gerður
ljótur grikkur
„Síðan, nær leið á daginn, sáum
vér eitt skip á vorri framleið. Það
skip var hollenskt, ei stríðsskip. Ég
hafða 2 stykki fram á skipinu, ekki
mjög stór, sem kallast hálfgóss; lóðið
upp á 9 marka þyngd. Kóngur bífal-
aði þeim er þau vakta ætti að gjöra
þau ferðug, hvað og gjörðist. Þá
mælti kóngur: „Nú skaltu, Jón,
ramma oss það skip er þar siglir. Nær
ég stykkin með fengpúðri og slíku
sem til heyrði, undir sigti tilbúið
hafði, þá afrétti kóngur stykkin sjálf-
ur eftir sinni vild, en ég gaf fýr upp á
þau. Ei vildi hann þeim mein gjöra
utan skelk. Svo voru skotin ellefu
skot eftir þeim, fyrr en þeir strika
vildu. Síðan kom skipherrann með
fimmta mann á borð til vor, skjálf-
andi og mjög hræddur, varpandi sér
fram fyrir kóng með gráti, afsakandi
sig mjög, einkum það liann ei vitað
hefði að kóngur sjálfur innan borðs
verið hefði. Kóngur uppsló til gam-
ans og reynslu að hann öll skotin
borga skyldi, sem var hvert skot með
rosenobel. Ei vildi kóngur þau þiggja
það sinn, utan ef í öðru sinni slíkt
tráss sýndi, skyldi hann útlátum
mæta. Kóngur lét færa honum og
hans mönnum 12 marka staup með
Rostockaröli og mat. Ei gat hann
fyrir hræðslu öls né matar neytt. Síð-
an fór hann í friði aftur til síns skips.“
Daudi galdrakerlingarinnar
Matthildar
„Og nær vér komum fyrir Var-
bergsslot lét kóngur setja sig með bát
til lands með nokkrum fleirum af
hofjunkurum og herrum. Þar sté
kóngur til vagns og hans herraleg
meðfylgd og reisti svo í gegnum Hall-
and í gegnum Skáney og yfir um Eyr-
arsund frá Helsingborg til Helsing-
eyrar. Og að lítilli dvöl þar entri kom
kóngur til skips aftur, og seint um
kvöldið komumst vér upp fyrir
Kaupinhafn, þar eð S. Önnu brú
kallast. Kóngsins hofprestur að nafni
M.Davíð gjörði langa oratoríu og
þakkargjörð með innilegu málfæri.
Síðan dró kóngur til lands í sinn al-
dingarð, sem stóð utan borgar í þann
tíma í norður frá borginni. Þar vuxu
allra handa j urtir og grös. Marcus hét
jurtagarðsmeistarinn. Slot stendur í
miðjum garðinum með háum turni,
veglega gjörður og ypparlegt hús
með gylltum og máluðum bílætum og
ilmandi lykt þar inni. I garðinum
miðjum stóð kóngsins mynd út-
höggvin í alabastursteini.
Að morgni komum vér heim í
borgina og var sérhverjum af oss vel
fagnað af vorum kunningjum og
Guði þakkir gjörðar fyrir lukkusam-
lega reisu fram og heim aftur.
Um frú Matthildi, sem fyrr var
nefnt, var sagt, nær hún spurði kóngs
ásetning, að hún hefði gengið í sitt
svefnherbergi einsömul og bannað
sinni þjónustumey þar inn að ganga
með sér og hafi skömmu seinna þar
dauð fundist.“
Sendum öllum sjómönnum árnakróskir
á hátíáisdeý. þeirra
Þórsnes h.f.
útgerð og fiskvinnsla
Reitavegi 14-16, Stykkishólmi
Sími: 438 1378 - 438 1473