Eimreiðin - 01.01.1923, Qupperneq 40
36 SANNFRÆÐI ÍSLENSKRA SAGNA eimreiðiN
Og það er óneitanlega merkilegt, að í næstu sveit við bú-
stað Skegg-Ávalda Ingjaldssonar skuli Ávalda-nafnið finnast í
tveimur bæjanöfnum, eða jafnvel þremur (sbr. Skeggvalda-
staðir) og hvergi armarstáðar. Mér finst, að Ávalds-nöfnin í
Víðidal bendi eindregið á, að frásögn Hallfreðarsögu og
Vatnsdælu sé í meginatriðum sönn, um Skegg-Ávalda Ingj-
aldsson. Og aðalstyrkurinn er fólginn í því, að Ávalds-nafnið
kemur ekki fyrir annarstaðar á landinu. Þetta getur því tæp-
lega verið tilviljun. Auðvitað geta sögurnar þá verið sannar í
fleiri atriðum en þessu. Sögunum ber vel saman um SkegS'
Ávalda. Þó er rétt að benda á það, að Hallfreðarsaga lætur
hann setjast að á »Knjúki í Vatnsdal« vorið eftir útkomu hans
hingað. Vatnsdæla segir aftur á móti, að Ávaldi hafi verið
með Klakka-Ormi. Hvorttveggja getur verið laukrétt. Guð-
brandur Vigfússon telur, að þeir fóstbræður Ottar og Ávaldi
hafi komið út laust eftir 960 (Safn til sögu íslands II. b., bls.
382). En Þorkell krafla ætlar Guðbrandur að sé fæddur um
940 (s. st„ bls. 381). Einnig giskar hann á, að Þorkell taki
við goðorði um 975. Víg Glæðis, sem Vatnsdæla getur um,
hefir þvi hlotið að gerast um 970. En einmitt um það leyti
var Skegg-Ávaldi »umsýslumaður« hjá Klakka-Ormi, er þá
bjó í Forsæludal, sem sést af Vatnsdælu. Um 964—5 byrjar
Skegg-Ávaldi að búa á »Knjúki í Vatnsdal«, en hér um bil
4—5 árum síðar er hann fluttur að Forsæludal. Og er þar
þó ekki búandi. Þetta gefur grun um, að Skegg-Ávaldi hafi
búið víðar, og því er ekkert á móti því, að hann hafi flust
vestur á bóginn í næstu sveit — Víðidal, og reist þar bú á
Ávaldsstöðum. Að minsta kosti hlýtur þá nákominn niðji hans
að hafa sett þar bú, því nafnið bendir eindregið á það, eins
og sýnt er hér að framan. Þegar þess er gætt, að SkegS'
Ávaldi hefir verið laust yfir tvítugt, þegar hann kom hingað
til lands, og tæplega meira en um þrítugt, þegar hann er t
Forsæludal, þá er einmitt mjög sennilegt, að hann hafi Sert
bú að nýju, svo að segja á besta aldri. Nú kunna menn að
segja, að hann hafi verið á Hnjúki a. m. k. þar til Kolfinna
giftist Grísi. En jafnvel þótt svo hefði verið, hefir Ávaldi ekki
getað verið meira en hálffimtugur í mesta lagi, þegar þeint