Eimreiðin - 01.01.1923, Síða 53
eimreiðin
ÞJÓÐHÁTÍÐ
49
að hafast þar við um nætur, eða vera ella undir berum himni.
Svona er þetta þann dag f dag. En með því að þessir mann-
fundir og hátíðir hafa verið svo sjaldan, síðan alþingi hið
forna var lagt niður, var húsnæðisþörfin ekki tilfinnanlegri en
bað, að menn kunnu því vel,' þótt þeir yrðu »að tjalda til
einnar nætur«. Þegar árlegar hátíðir tækjust upp á Þingvöll-
utu, viki málinu öðruvísi við. Æði margir, að minsta kosti
höfuðstaðarbúar og nærsveitamenn, mundu sækja hátíðina ár
hvert. Ef hátíðin verður eins fjölmenn og margþætt og vikið
var að hér á undan, hlyti afleiðingin að verða sú, að marg-
menni ætti að vera á Þingvöllum að minsta kosti í 2 eða 3
daga. Mundu þá margir kjósa að hafa tryggara skjól en undir
fjaldi. Þörfin væri fyrir hendi að fá sér varanlegt skýli. En
börfin er sterkt afl til að framkvæma. Menn mundu hefjast
handa og gera „búð“ handa sér og sínum. Stærð hennar yrði
sniðin eftir þörf og getu og öðrum ástæðum. Til þess að
sem flestir gætu haft athvarf í eigin búð, þyrftu menn að hafa
samtök og samvinnu um búðasmíði. Hér mundu þegar stofn-
uð og starfandi félög eiga hægast með að ríða á vaðið. I
höfuðstaðnum eru ýms allfjölmenn félög, er telja á meðal fé-
laga sinna marga efnaða menn, sem ekki mundu reisa sér
hurðarás um öxl með búðargerð handa félögum sínum. Hugsa
>ná sér og, að stofnanir eins og bankarnir gerðu búð handa
starfsmönnum sínum. En eg hugsa mér búðirnar svo einfaldar
að gerð, að þær gætu verið ódýrar og fleirum kleift en fé-
sterkum félögum að koma sér þeim upp. Það má einmitt gera
ráð fyrir því, að einstakir menn mundu reisa búð fyrir skyldu-
hð sitt. Þá fengjum vér á forna vísu ættarbúðir. Ættarhöfð-
■ngjar mundu kosta kapps um að hafa sína eigin búð. Og
heil héruð, sérstaklega fjarlæg héruð, ættu að hafa samtök
nm að reisa héraðsmönnum sínum búð. Það ættu að verða
hl búðir með nöfnum eins og Húnvetningabúð, Skagfirðinga-
húð, Eyfirðingabúð o. s. frv.
Þannig fengjum vér endurreistar búðir feðranna.
Ekki skal í þetta sinn gerð tillaga um, hvar búðirnar mættu
°9 ættu að standa. I þinghelginni fornu ættu þær ekki að
vora reistar. Áður en til búðagerðar kæmi, er það hlutverk
4