Eimreiðin - 01.01.1928, Blaðsíða 88
68
BÓKMENTAIÐJA ÍSL. í VESTURHEIMI eimreiðiN
nýbyggjar í framandi landi, er braut urðu sér að brjóta. Kring-
um 40 blöð og tímarit hafa þeir gefið út á íslenzku. Mörg
hafa að vísu orðið skammlíf og því ekki áhrifarík, og flest
eru nú horfin úr sögunni. En þessi koma ennþá út: fjögur
hinna elztu, »Sameiningin«, »Heimskringla«, »Lögberg« og
»Almanak« Olafs S. Thorgeirssonar, en af hinum yngri »Tíma-
rit Þjóðræknisfélagsins*, »Stjarnan« og »Saga«.
Þá er hitt ekki síður merkilegt, hve blöðin og tímaritm
hafa verið margbreytt að efni, hve stefnurnar hafa verið fra-
brugðnar og áhugamálin mörg, sem leiddu til stofnunar þeirra-
Er það glöggur vottur þess, að íslendingar í Vesturheimi
hafa ekki verið ósnortnir af andlegum straumum samtíðar
sinnar, að þeir hafa ekki allir sofið. Að sönnu hefur það ef-
laust rýrt gildi sumra blaðanna, að takmark þeirra og verk-
svið voru æði einskorðuð. En öll hafa blöðin og tímaritin haft
eitthvert menningargildi, þó misjafnt væri eftir gæðum þeirra,
útbreiðslu og lengd útgáfutíðar. Eigi er að undra, þó að þaU
hafi stundum brugðist skyldu sinni og loforðum. En eftir
föngum hafa þau fjallað um einhver þau mál, er til nytsemda
horfðu. Þau eru ekki fá velferðarmálin, sem blöðin vestur-
íslenzku hafa hrundið af stað og komið í framkvæmd. Á þetta
var bent í sambandi við »Heimskringlu« og »Lögberg«, enda
eru þau útbreiddust og elzt af fréttablöðunum að lengd °S
útgáfutíma.
Ekki verður því neitað, að oft hefur blöðunum, þeim fremur
en tímaritunum, verið áfátt að hreinu máli og góðum rithætti-
Er það ekki að furða, þegar litið er á allar aðstæður, utf1
hverfið enskumælandi á eina hönd, en á hina þetta, að mar9'r’
sem í blaðritstjórn réðust, höfðu eigi notið þess undirbúnitfS®
í málkunnáttu eða öðrum fræðum, er æskilegt var. Nytsetf1
fyrirtækisins var þeim fyrir öllu. Það skyldi munað. Samt ha
blöðin flest haft nokkurt bókmentagildi. Á það sérstakleð3
heima um fræði- og skemtiritin, að ógleymdum ýmsum frétta
blöðunum. (Jm »Heimskringlu« og »Lögberg« hefur þess þe9ur
verið getið, að þau hafi birt margt af ritsmíðum hinna frems
skálda vestan hafs; má svipað segja um almennu tímarit>n'
Þau hafa flutt margt það, frá hendi vestur-íslenzkra ská a>
er listgildi hefur og lífsgildi.