Eimreiðin - 01.04.1929, Blaðsíða 4
IV
eimreiðin
Verðlaunaspurningin.
Hvað er mentun?
Maroir hafa orðið lil að svara spurningunni í síðasta hefti Eimr.
Hinn 1. maí voru svörin orðin um fimmtíu og síðan hafa nokkur bæz1
við. Einsfaka svör voru of Iöng, og eitt eða tvö voru undir dulnefni, án
þess að hið rétta nafn fylgdi. Geta þau ekki komið fil greina og ekki
heldur þau, sem komu of seint. Nokkrir hafa svarað í bundnu máh.
F. H. Berg, Akureyri, sendir þétta svar:
Mentun er þróun allra upphafsgjafa,
eldstólpi sá, er lýsir fávits húm.
Vaxtarþrá sálar, sem vill útsýn hafa
í sérhverja átt og gegnum tíma og rúm,
gróandi ax á andans akri breiðum,
áveita ný á ræktarlausum heiðum.
Hér skulu birt nokkur fleiri svör:
Mentun er að vita eitthvað um alt, en alt um eitt. Reynslan er bezta
mentunartækið, því hún er bygð á raunveruleik. Sá er vel mentaður,
er lætur sig öll mál eitthvað varða, en tekur ekki þátt í þeim fyr en
hann hefur skoðað þau frá öllum hliðum. Sá er sannmentaður, sem
altaf getur sáð hollu og nýjit líffræi í annara akur, hvar sem hann fer.
[Olafur Isleifsson, Þjórsártúni]-
Mentun er það að vera sér meðvitandi um smæð sína, og um le>®
um eilíft gildi sitf og möguleika, — ennfremur að hafa lært að þekki3
sannleikann frá lýginni og kunna rétt skil hvorstveggja.
[Stefán Guðmundsson, Hólum, Dýrafirði].
Mentun er allur sá lærdómur og lífsreynsla, sem glæðir guðsneistann
í sál vorri og þroskar guðsmyndina í oss — öll sú þekking, sem ser,r
Líftryggið yður í stærsta líftryggingarfélagi á Norðurlönflum:
THULE, Stokkhólmi.
Við árslok 1927 tryggingar í gildi yfir kr. 658,571,058,00.
Af ársarði 1927 fá hinir líftrygðu endurgreitt kr. 3,634,048,00
en hluthafar aðeins 30,000,00.
Aðalumboðsm. f. ísland:
Reykjavík.
A. V. Tulinius,
Sími: 254.