Eimreiðin - 01.04.1929, Síða 36
124
UM BÍL OG STÍL
eimreiðiN
VI.
Þúsund ár eru langur tími. En þar til hlutlæg vísindales
rannsókn hefur leitt annað í ljós, mun mega treysta því, að
»eðli íslendinga* sé enn fortíðinni samkvæmt. Enda þarf ekki
mjög langt að seilast eftir líkindum fyrir því, að þessu sé oS
þannig háttað, þótt ekki verði það hér gert.
En »eðli íslendinga* er sá kraftur, sem vélina á að knýja.
Þjóðlífið hefur þá fyrst fengið sannan og trúan stíl, er at-
hafnir þjóðarinnar túlka það eðli. En stíllinn fær og svip sinn
af efninu, sem smíðað er úr.
Nokkrir kunningjar mínir hafa deilt á mig fyrir sum atriði
í ritgerð þeirri, »Flóttinn«, sem áður hefur verið drepið á,
og sagt að ég teldi mennina ekkert annað en leirhnoða >
höndum efnislegra afla. En svo er ekki. Eg er fyrir lönsu
kominn út yfir sögutúlkun Karls Marx. Hitt veit ég, og allir.
er um það hugsa, að sé voldugum fjárhagslegum öflum leyfl
að ná sér á skrið í ákveðnar áttir, þá standast ekki mann-
verur skriðuna.
Nú er það áreiðanlegt, að iðnaðarmenning heimsins sækir
á þjóðina, hvort sem mönnum líkar betur eða ver. Og ekkert
er að flýja. En spurningin mikla í þjóðmálum landsins núna
er þessi: Á að láta þessa tegund menningar flæða yfir landið
og landsmenn ganga í gegnum alla þá viðurstygð, sem heitir
nútíma-kapitalismus, eða á að taka við straumnum við ósinn
og setja á hann stíl vors eðlis?
Sé ekki mjög fjarri til getið í því, sem sagt hefur verið
hér að framan um rótina í lífsskoðun íslenzkrar þjóðar, þa
er enginn vafi á því, hvað gera á. Rúmið leyfir ekki lanS*
mál. En þetta er niðurstaðan: Framtíð íslenzkrar menning^
er undir því komin, að þjóðin mentist örara en iðnaðarmenn-
ingin sækir á hana. Engin þjóð sigrar iðnaðinn nema sú, sem
er öll skipuð mentuðum mönnum. Engin þjóð í heiminum er
þess umkomin að gera þessa hugsjón að veruleika á dösunl
næsfu kynslóða nema þessi, sem minst er og aldrei var annað
en heild skynbærra samstéttarmanna. Öll önnur lausn á deil'
um atvinnumálanna er þjóðinni ósamboðin. Öll önnur lausn