Eimreiðin - 01.04.1929, Page 62
150
GUÐFRÆÐINÁM OG GÓÐ KIRKJA
eimreiðin
göllum deildarinnar sé teygt all-mjög úr hófi fram, en kostir
allir rýrðir að því skapi. Af því það er óhjákvæmilegt, að
slík lýsing á einni af æðstu mentastofnunum þessa lands hljóti
að rýra álit hennar í augum þeirra, er ekki hafa nánari kynni
af henni, lít ég svo á, að íslenzkum almenningi sé greiði
gerr, að þær upplýsingar séu gefnar, er ganga sönnu nær.
Af grein R. E. Kv. verður ekki annað ráðið en að guð-
fræðinámið gangi út á það eitt að kynnast fornum og úrelt-
um trúarbrögðum, Gyðingatrú og trúarhugmyndum fornkirkj-
unnar, og í þetta fari orka og athygli íslenzkra prestsefna
óskift í þau 4 ár, sem þeir búa sig undir starf sitt. »Alt hitt
er vanrækt, sem þeim er mikilvægara að átta sig á«, segir
hann. Er all-furðulegt, að heyra slíku haldið fram. Hið sanna
er, að í guðfræðideildinni er fyrst og fremst lesin kristin guð-
fræði. En þannig nefnist vísindagrein, sem fæst við sín af-
mörkuðu, ákveðnu verkefni. Það er hægt í stuttu máli að
gera grein fyrir því, hvert verkefni hennar er. Það er hægt
með tveimur orðum. Orðin eru Jesús Kristur. Kristin guð-
fræði fræðir um ]esú Krist. Og sú vísindagrein er kend í
guðfræðideild Háskóla Islands. Þar er verið að kynnast per-
sónu hans, lífi hans kenningum hans og áhrifum. Ég skil'
ekki, að nokkur geti setið svo í einum einasta tíma í deild-
inni, að honum sé þetta ekki ljóst. Að minsta kosti verður
þá að ætla, að efiirtekt og skilningur slíks manns sé furðu-
lega gerður. — En þar sem Jesús Kristur er söguleg stað-
reynd, hlýtur vísindaleg rannsókn, sem við hann fæst, að
krefjast ítarlegrar sögurannsóknar. Þess vegna hljóta Iíka þær
söguheimildir, er um hann fræða, að vera aðalgrein guðfræð-
innar. Svo er það líka í guðfræðideild vorri. Rannsókn Nýja-
testamentisins er þar langsamlega yfirgripsmesta verkefnið-
Sé miðað við lesmálið eitt og víðáttu þess, þá hygg ég, að
það láti nærri lagi, að þær bækur, er um Nýja testamentið
fjalla, taki yfir röskan helming þess lesmáls, sem ætlað er til
guðfræðiprófs. Grunar mig jafnvel, að hér sé væglega ágizkað,
en sjálfur lauk ég svo mínu prófi, að ég hafði aldrei talið
saman eða reiknað út blaðsíðufjölda námsgreinanna. Uin
Gamla-testamentis námið, sem R. E. Kv. vex svo mjög '
atigum, er það að segja, að því er vitanlega haldið við af