Eimreiðin - 01.10.1933, Page 40
390
HRÍMSKÓGUR
EIMREIÐIN
Það er íslenzki smaladrengurinn, sem grætur nekt móður
sinnar....
Skyndilega birtir fyrir augum. Skógarveggurinn víkur og
hverfur. Fram undan opnast allstórt skóglaust svæði, með
klettaþrepum upp eftir hlíðinni. Þar hefur barrskógurinn verið
höggvinn síðustu árin. Stúfarnir standa eftir hingað og þangað
upp úr snjónum. En meðfram járnbrautinni, báðu megin við
akveginn, er allstór birkilundur. Trén eru há og beinvaxin,
börkurinn silfurhvítur með dökkum blettum. Snjó hefur eigi
fest á greinunum, en þær leiftra og loga í einkennilega dá-
samlegum töfraljóma, um leið og eimlestin brunar fram hjá,
og stafnljósið varpar þjótandi bjarma yfir lundinn. — Dásam-
legur æfintýraheimur hafði opnast mér, en horfið jafnskjótt
aftur í rökkurblámann.
Eimlestin blístraði fyrir varðstöð í skóginum. Þar átti að
nema staðar sem allra snöggvast. Alveg ósjálfrátt reis ég upp
og gekk út á pallinn á milli vagnanna. Og um leið og lestin
stöðvaðist, var ég kominn niður á stéttina og farinn á stað í
áttina til birkilundarins. Það var örstutt. En ég var hvorki
að hugsa um vegalengd né líðandi stund. Hugur minn drógst
ómótstæðilega í ákveðna átt að vissu marki, sem mér var þó
alls eigi Ijóst, hvað var.
Allt í einu birti fram undan á milli furutrjánna. Fult tunglið
sigldi upp á himininn að skógarbaki. Ég var kominn út úr barr-
skóginum, og birkilundurinn blasti við mér í tunglskinsflóðinu.
Guð minn góður! Hvílík dýrð! Hjartað stöðvaðist sem
snöggvast í brjósti mínu, en brauzt síðan á stað aftur með
þvílíku afli, að mér lá við köfnun. Hvílík dýrð!
Hrímskógur!
Hver grein birkitrjánna er loðin af þúsundum hrímnála. 09
hver hrímnál er guðdómlegt listaverk, dásamlegasta víravirki,
ofið úr miljónum ískristalla. Hver kristall er örlítið leiftr-
andi blys.
Og nú kveikir tunglið öll þessi blys — miljónir miljóna!
Greinar trjánna titra í frostkyrðinni. Það er eins og straumur
tunglsgeislanna beri þær undurhægt. Kristallarnir leiftra,
og glóa í óumræðilega hárfínum ljósbrigðum. Og silfurskær
ómur, saman ofinn af frost-tindrandi-tærum, yfirjarðneskum