Eimreiðin - 01.10.1933, Page 102
452
RITSJÁ
EIMREIÐIN'
hrópar hún í angist sinni, en engum dellur í hug aö rétta henni hjúkr-
unar- eÖa hjáiparhönd, og síðasta vísa kvæÖisins markar ógleymanlega
hlutfall hennar á heimilinu.
„Loks komst hún í kyrðina
kerlingar-skitan",
kvað bóndinn og kjamsaöi
kvöldverðar bitann.
Þá eru allmörg kvæði, sem eru full af skopi, ýmist góðlállegu eða
meinlegu, t. d. Hróður sótarans, Sigurinn, Talað af sér og síðast en
ekki sízt Nöldur Drómundar. Þessi strengur í Ijóðagerð jjakobs er svo
sterkur, að hann hefur alt af setf sinn svip á kvæði hans. Það er ekki
einungis, að hann yrki heil kvæði í þessum anda, heldur bregður höf-
undur oft á þenna Ieik í kvæðum, sem eru alvarlegs efnis, f. d. er
þessi vísa í kvæðinu Gisting í Húsey:
Hvergi veit ég hundruð óma
hörpustrengja eins og þar,
kjóans, spóans, kríunnar
klið má heyra’ og þrasta róma,
andakvak og álftahljóma,
auk þess Ióm, það mæðuskar.
Þetla mundi engum delta í hug, nema jakob. Og lesandinn getur varla
annað an kýmf að lómgreyinu líka, þó að hann hafi ekki til saka unnið
annað en syngja með sínu nefi, eins og hinir fuglarnir. Þetta er glögt
dæmi þess, hve ákaflega lílið þarf til aö vekja hótfyndni skáldsins, og
hve tilfinning þess er næm fyrir öllu því, sem skoplegt er.
Því hefur oft verið haldið fram, að Jakob líkist Qrími Thomsen 1
kveðskap sínum. En ekki verður séð að það hafi við mikil rök að styðj-
ast. Langmestur hlutinn af kvæðum Qríms er atburðalýsingar og dýrkun
á fornöld og fortíð. Aftur á móti á ekki nýi tíminn upp á pallborðið h)a
Qrími, sbr.:
„Qildari virðist, unglingar,
til ofanveltu ykkar kraftar
en til þess að byggja’ upp aftur".
Ellegar þetta:
„Þó að liggi lífið á
þeir láta það núna bíða
í jökulhlaupi Jökulsá
og jakaburði’ að ríöa“.
Svo að hér sé vifnað í það eitf, sem allir kunna.
Hinsvegar hefur Jakob Thorarensen ekki gert einum tíma hærra undir
höfði en öðrum. Grímur yrkir mest um sögulega atburði. Allur fjöldinn
af kvæðum Jakobs eru sálarlífslýsingar. En það, sem mestu varðar í
þessu efni er það, að yfirbragð ljóðanna, málbragur allur og líkingaval
er gerólíkt.