Eimreiðin - 01.10.1934, Síða 31
EIMREIÐIN
NAPÓLEON BÓNAPARTE
357
um, þöglum, jafnvel gráthneigðum, alónýtum til burða. Menn
misbuðu honum, hann gekk úr vistinni. Mannleysa, sögðu menn;
°9 hann grét í laumi. Oft fyrirgáfu menn honum þó og
sögðu að það byggi eitthvað í honum, það gæti bara ekki
komið fram. Og léttur var hann á fæti. Og fljótur var hann
að læra að synda. Hann var oft sendur í smalaferðir og
synti yfir ár þar sem hann kom að þeim. En oft kom fyrir
að hann gleymdi kindunum og klifi á fjallatinda, þar hlóð
hann vörður til endurminningar um sig. Þær standa enn.
Svona liðu árin eitt af öðru, á flækingi, hjá misjöfnu fólki.
Hann lagði snemma áherzlu á að eiga góð föt, meðan öðrum
Un9um mönnum þótti mest um vert að stæla kraftana, og
þótti í frásögur færandi, að hann kom sér upp tvennum
sparifötum. Að þessu var mikið hlegið í sveitinni. Hann þurfti
°ft að fara í kaupstaðinn og undi sér hvergi betur, fór með
sumarkaupið sitt á viku og keypti glingur, varð ekkert uppi-
fast. En hann vandist aldrei á drykkjuskap. Hann var of
einrænn til að binda trúss við þá félaga, sem honum buðust,
en höfðingjarnir vissu ekki að hann var til. Tvisvar eða
þrisvar kvaddi hann í sveitinni og sagðist taka sér fari til út-
fanda á næsta skipi. En í hvert skifti náðu aurarnir of skamt,
°9 hann kom aftur upp í sveitina með allskonar glingur,
SS1U hann hafði keypt. Seinast kom hann með silfurbúin gler-
au9u frá lækninum, því hann hafði oft séð sýslumanninn með
Sjeraugu, og þótt þau væru alt of sterk, og til trafala við
Ulnnu, voru þau samt hið síðasta sem hann klæddi af sér að
j^öldi. Andhæli, sögðu menn, honum væri nær að hjálpa
sttni móður sinni að byggja upp baðstofuna. Þóttist hann þá
v’era einhver bókabéus, úr því hann var kominn með gleraugu?
Nei, hann las ekki meira en fólk flest. Hann las það sem
g0num barst í hendur, eins og annað fólk, Tyrkjaránssöguna,
°9U krossferðanna, en það varð’ekki séð, að lestur hans
miðaði að neinu marki, né það sem hann læsi hefði sérstök
ru á hann umfram aðra menn. Að vísu talaði hann illa um
?rui> eins og allir sem lesa Tyrkjaránssöguna, en hann tal-
1 ekki ver um þá en hver annar. Honum þótti einnig leiðin-
9’ að krossförunum skyldi ekki hafa auðnast að yfirvinna
Srdf 5esú Krists og endurreisa kristindóminn þar eystra, en