Eimreiðin - 01.10.1934, Blaðsíða 69
eimreiðin SÁL OG SAGA Á ÍSLANDI OG í ARABÍU
395
vegna myndast oftast frásagnirnar innan þeirrar umgerðar,
er ætternið veitir. Og í arabískum sögnum, jafnt og í íslend-
•ngasögum, er skotið inn vísum einstakra manna, er við sög-
una koma, til þess að prýða þær eða til þess að bregða betur
Ijósi yfir tilfinningar manna.
Sú þróun trúarbragðanna, er spámaðurinn Múhammed hóf,
°lli því, að arabískan varð heimsmál, og bókmentir hinnar
f°rnu arabísku menningar urðu þess vegna fyrirmyndir víða
lönd og um langan aldur, en það var fyrst eftir margra
alda bil, að ávextir hins íslenzka menningarlífs fengu aftur
viðurkenningu, einnig utan sögueyjarinnar, og málið sjálft náði
aldrei svo teljandi væri út fyrir landsteinana. En engin eftir-
líking menningar-ávaxta þessara tveggja þjóða nær nokkurn
líma frumverkunum, hvorki að eðlisgildi né blæ, því að um-
kverfið, náttúran, jarðvegurinn, sem þau voru sprottin úr, finst
kvergi annarstaðar í heimi. Eyðimörkin og hin ófrjóa, af-
skekta hrauneyja, var eitthvað svo einstætt, svo sérlynt og
stríðlynt og hafði þó svo djúp áhrif á mannssálirnar, að ekkert
annað svæði jarðar fékk jafnast við. Þess vegna urðu og þær
kugarstefnur og þær ritsmíðar, sem þar komu fram, ein-
stæðar, sérlyndar og stríðar, en áttu upptök sín í djúpum
hugarhræringum. Þess vegna urðu þær og sviplíkar, en ann-
ars ólíkar öllu öðru í víðri veröld. G. F. þýddi.
Málmar úr lofttegundum.
Efnafræðin hefur tekið meiri og skjótari breytingum og
framförum á síðustu árum en flestar eða allar aðrar fræði-
Sreinar. Það hefur meðal annars komið í Ijós, að frumefnin
svonefndu eru enganveginn ósamsett, að takast má að breyta
einu efni í annað og að hinn aldagamli draumur gullgerðar-
U'annanna gömlu, um að hægt muni að búa til gull, er miklu
uieiri veruleiki en vísindamenn nítjándu aldarinnar héldu.
Alexander Goetz og aðrir starfsmenn við Iðnfræðastofn-
uuina í Kaliforníu (The California Institute of Technology) eru