Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1948, Page 84

Eimreiðin - 01.01.1948, Page 84
72 EIMREIÐIN þá kannski eins og kálhöfuð úr garðinum þínum, sem þarf aS þreifa á, hvort ekki sé trénað, úr því þú þarft að finna, livað ég sé mjúk?“ Allt í einu sló þeirri liugsun niður í mér, að hún mundi alls ekki vita, að ég væri blind. „Systir mín góða, ég er blind“, sagði ég. Hana setti hljóða. Ég fann, hvernig liún starði forvitnislega stórum, æskufögrum augum inn í andlit mér. Og ég vissi, að það var meðaumkvun í þeim. Hún varð hrædd og hikandi, en svo sagði hún eftir nokkra þögn: „Ó! Nú skil ég. Þess vegna hefur maðurinn þinn boðið frænku sinni að koma og dvelja liér“. „Nei!“ svaraði ég, „þér skjátl- ast. Hann bað hana ekki að koma, heldur kom hún óboðin“. Hemangini hló glaðlega og sagði: „Það er líkt frænku minni að koma án þess að vera boðin. Var það ekki fallega gert af henni? En nú er ég viss um, að liún verður hér áfram um tíma, úr því hún er komin á annað borð“. Svo þagnaði hún og varð vandræðaleg. „En hvers vegna sendi faðir minn mig hingað? Geturðu sagt mér það?“ spurði hún. Frænkan liafði komið inn í herbergið, meðan við vorum að tala saman, og Hemangini sneri sér nú að henni og sagði: „Hvenær ætlar þú að fara héð- an aftur, frænka?“ Frænkan virtist vera í æstu skapi. „Hvað eiga þessar spurning- ar að þýða?“ sagði hún. „Ég hef aldrei þekkt aðra eins ó- temju og þig. Við erum ekki fyrr komnar inn fyrir þröskuld- inn en þú ferð að spyrja hve- nær við munum fara heim aft- ur“. „Það er allt í lagi hvað þig snertir“, sagði Hemangini, því Jietta er heimili nákomins ætt- ingja þíns. En það er öðru máli að gegna með mig. Ég segi þér satt, að ekki get ég verið hér til lengdar. Eða hvað finnst þér, góða?“ bætti hún við og tók um hönd mína. Ég dró liana að brjósti niér, en sagði ekkert. Frænkan var komin í klípu. Hún fann, að hún réði ekki við kringum- stæðurnar, eins og nú var kom- ið, og tók því það til bragðs að stinga upp á því, að þ*r skyldu báðar fara út til að fá sér bað og synda. „Nei, við förum saman ■> sagði Hemangini og hélt ser fast í mig. Frænkan þorði ekki að mótmæla, óttaðist viðnam>
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.