Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1952, Page 35

Eimreiðin - 01.07.1952, Page 35
ElMlíEIÐIN VERNDARI SMÆLINGJANNA 187 hjálpar og kvað löngu mál til þess komið að leysa upp heimili þeirra Kotshjóna, enda skyldi það nú gert, strax og hann gæti í því snúizt. Væri þeim hjónum sæmst að fara í vinnumennsku, en börnunum mætti eflaust kjálka niður á einhverjum heimil- utn. Varð Jóhannes að snúa heim með þessi svör. Daginn eftir skáru hjónin í Koti búpening sinn. Eina kýrin þeirra var löngu steingeld, svo að ekki var eftirsjá að henni, bvað mjólk snerti. Og kjötið, þótt horkjöt væri, var nokkur björg 1 búið, héldu hjónin. En þau áttu eftir að komast að raun um, aS það var tálvon. Kornmat þeirra þraut, og öll fjölskyldan varð veik af sífelldu horkjötsáti. Jóhannes reyndi að grafa upp holtarætur, en bæði var, að djúpt var á holtin, enda lítil til- breytni að rótunum, svo fáar sem náðust. Þar kom, að hjónunum í Koti var ljóst, að annaðhvort yrðu þau að ganga á ný beiningagötuna heim að Kinnarstöðum til svertarhöfðingjans, ellegar börn þeirra yrðu hungurmorða. Dg aftur lagði Jóhannes hóndi af stað. f þetta sinn var það °rvasa gamalmenni, sem Kristbjörg sá hverfa suður af leitinu sunnan við Kotsbæinn, og bæði munu hjónin hafa hugsað, að eflaust mundi hin nýja bónarför ekki leiða til annars en að nú gerði Kinnarstaðabóndinn alvöru úr þvi að tvístra heimilinu. b'ii allt varð að reyna. Um kvöldið kom Jóhannes ekki heim. í Koti grétu bömin af hungri og innantökum, og Kristlaug eigraði friðvana milli þbflyra og baðstofu. Loks gat hún ekki látið við svo búið sitja. un greip slitnu þríhyrnuna sína, brá henni yfir herðar sér °S snaraðist út í vetrarkuldann. ^ti var heiðskírt og hálfur máni á lofti, — draugaleg birta yflr lífvana heimi. Kaastlaug gekk suður á leitið — Draugaleiti heitir það — og 1ar sa hún nokkuð, sem kom henni til að riða við, spor úr suðurátt, sem lágu út og niður að syðstakofa. Jóhannes hlaut a hafa farið þarna um, en hvað vildi hann í tóman lamba- bofann? reyndi að hraða sér eftir slóð Jóhannesar, en henni yrir brjósti eins og hún væri að kafna. Loks náði Un kofanum. Hann var galopinn. Hún kallaði aftur og aftur lnn í myrkrið, en fékk ekkert svar. Þá réðst hún til inngöngu, Kristlaug far þungt :

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.