Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1957, Page 13

Eimreiðin - 01.07.1957, Page 13
NOKKUR ORÐ UM BÓKMENNTAKENNSLU 165 hugaverðir í sambandi við bókmenntakennslu, og miða ég þá við gagnafræðastigið: Áreiðanlegt er, að allverulegur hluti barna og unglinga hefur aldrei vanizt á að hlusta á lesið efni til að njóta þess. Því er nauðsynlegt að venja nemendurna við að hlusta. Áður en kennsla hefst á morgnana er gott að lesa þeim annaðhvort lítið ljóð, brot úr ljóði, spaklega eða vel orðaða grein eða annað þess háttar. Og umfram allt: Það er bezt að lesa sama Ijóðið og sömu greinina oftar en einu sinni, helzt oft, jafn- vel það oft, að meginþorri barnanna læri það, sem lesið er. Sé ég veg og vörður vísa upp í móti. Styrk þarf til að standa, stikla á eggjagrjóti. Uppi á bláu bergi blikar óskalindin. Blessun bíður þeirra, sem brjótast upp á tindinn. hað bam, sem numið hefur klið og hrynjandi þessarar vísu, töfra hennar og mið, mun áreiðanlega alloft hvarfla huga til hennar, njóta hennar og nema af henni. Og rétt er að geta höfunda þeirra, sem lesið er eftir, ekki aðeins í fyrsta skipti, Sem lesið er, heldur í hvert sinn. Einnig er gott að drepa á til- efni kvæðis og tengja þennan morgunlestur merkisdögum, d. afmælum og ártíðum merkra íslendinga, svo og 1. des- ember o. fl. Horfi ég á höggstokk: Herra lífs og dauða, dæm nú þér til dýrðar dropana mína rauða. Fylgi mér til moldar mín hin fornu vígi: fylgist þá til foldar falstrú öll og lygi! Állir vita, hvaða dag mundi eiga að lesa þessa vísu. Og hvaða Unglingur hefur ekki ómetanlegt gagn af að láta þessar hljóm- fögru og spaklegu setningar syngja sig inn í sál sína?:

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.