Eimreiðin - 01.07.1957, Blaðsíða 69
Öíar,
Höfundur kvæðisins Órar, er hér fer á eftir, er Skúli V. Guðjónsson,
prófessor í Árósum. Dr. Skúli var fæddur í Vatnskoti í Hegranesi í Skaga-
íjarðarsýslu 26. nóvember 1895. Hann varð stúdent 1917, cand. med.
1923. Prófessor í heilsufræði og manneldisfræðum í Árósum 1939. Mjög
K'kktur vísindamaður víða um heim.
í skóla orti hann nokkuð, en lagði það að mestu niður lengi. Fór
aftur að yrkja á efri árum, eftir að hann tók þann sið, að dvelja í ætt-
landi sínu og heimasveit að sumrum.
Kvæði hans sýna, að hann hefur verið skáld gott.
Hr. Skúli andaðist snögglega 25. janúar 1955.
Þ. J.
Hvað er svef n og hvað er vaka?
Hvar eru mœrin drauma landa,
ef að hugar órar taka
arnflugið með vœngi þanda?
Dalalæða deigan slóða
dregur eftir lægð og sundum,
grúfir rekju-misturs móða
mjúklima á velli og grundum.
Daggarúða dreglum sleginn
drúpir þwigu höfði smalinn,
hvildinni og friði feginn
um fjalla-rökkur-bláan dalinn.
Fuglum himins flugin dofna,
fjaðrasléttan livíla vœnginn,
á mosaþúfum mjúkum sofna,
mild er þreyttum nætursængin.