Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1957, Blaðsíða 12

Eimreiðin - 01.07.1957, Blaðsíða 12
164 EIMREIÐIN nokkurn að undra, þótt unglingar séu almennt ekkert ginn- keyptir fyrir því, sem kallast íslenzk menning og bókmennt- ir, og lélegar reyfarasögur og æsirit í erlendum búningi verði aðallestrarefni margra? Unglingarnir hafa sem sé aldrei kom- izt í kynni við „ástkæra, ylhýra málið“, svo að nokkru nemi. Ég veit, að þetta er alls ekki sök kennaranna. Engir nema kennsluskussar hafa meiri ánægju af reglustaglinu en lifandi fræðslu. Þetta er sök þeirra, sem námsefninu ráða, og þeirra, sem ákveðið hafa reglur þær um stafsetningu og merkja- setningu, sem enn eru við lýði. Og þetta er því um að kenna, að íslenzkum bókmenntum og sögu er ekki ætlað nægilegt rúm í stundaskrá skólanna. Mjög greindur og gegn embættismaður hefur sagt mér, að sonur sinn, sem var ágætur stílisti um fermingu, hafði ánægju af fögru máli og átti mjög auðvelt með að færa hugs- anir sínar í skemmtilegan búning ritaðs máls, hafi braut- skráðst úr menntaskóla svo lerkaður eftir reglu- og leiðrétt- ingasmásmugusemina, að hann fái sig naumast til að setjast niður og skrifa sendibréf hvað þá meira. Ég hygg, að fleiri hafi svipaða sögu að segja. En hvað má þá til varnar verða? Hvað skal taka til bragðs? Það liggur í augum uppi, að fyrst og fremst þarf að fá ís- lenzkunámi rýmri tíma á stundaskrá skólanna, og það þarf að gera lestur sígildra bókmennta og sagnfræðirita að aðal- atriði kennslunnar í stað reglna um hluti, sem ekki skipta ýkjamiklu máli. En meðan svo er ekki, meðan íslenzkunámi eru í mesta lagi ætlaðar 6 vikustundir í hverjum bekk og komman og setan og þeirra fylgifiskar metnar til margra dýr- mætra daga í lífi æskufólks, þurfa kennarar að gera allt, sem í þeirra valdi stendur til að efla áhuga æskunnar á sögu og bókmenntum, fögru máli og vel rituðu, vekja til lífs og hlúa að hverjum vísi til sjálfstæðs sköpunarstarfs meðal nemend- anna og leitast við að opna hug þeirra fyrir töfrum góðra lista- verka. Mér er ljóst, að bókmenntakennsla er ef til vill enn meira undir hæfileikum kennarans komin en flestar aðrar kennslu- greinir miðað við núverandi kennslufyrirkomulag. En samt vil ég reyna að benda á nokkra hluti, sem ég hygg, að séu at-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.