Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1957, Blaðsíða 29

Eimreiðin - 01.07.1957, Blaðsíða 29
KONUNGURINN í ATOM 181 Börn yðar munu verða slegin kaunum, konur yðar munu falla á ökrum undir oki þrældómsins. Dauðinn mun halda inn- reið sína í ríki yðar og eldurinn gullni mun svelgja hin hvítu blóm. Herra, gakk á vit óvinarins og gef honum lýs- mgu á landi yðar eftir þetta stríð. Og ef það snýr ekki huga hans, þá bjóð honum skipti á konungdómi, svo að hann geti vitað af eigin raun, hvort er meira, það, sem hann hefur, eða hitt, sem hann gimist. Herra, þér skulið ekki óttast; allir sigurvegarar kynslóðanna eru fallnir, aðeins þeir, sem með mildinni hafa barizt, munu lifa dauða sinn. Því segi ég yður, herra, sæll er sá einn, sem þekkir hið illa, án þess að hið góða víkji frá hjarta hans. Og hinn aldni þulur, Míþrades Kapía, laut konungi sínum 1 auðmýkt, og hann vék frá hásæti hans með lotningu. há heyrðist kurr meðal spámannanna, og æðstiprestur must- erisins reis á fætur og hrópaði: Hann er njósnaril Hann gengur erinda óvinarins! Hví dirfist þessi maður að bera brigður á orð vor? Höfum vér ekki séð teikn á himni, og höfum vér ekki heyrt rödd hinna ödauðlegu? Hvað hafa stjörnuspekingarnir lesið úr vetrar- hrautinni? Hvað hafa innyflafræðingar ríkisins séð í líffærum hinna heilögu dýra? Hafa þeir ekki rakið í sundur garnir kattarins, og hafa þeir ekki í sundur skorið hjarta dúfunnar, °g hvað hafa þeir séð? Blóð! blóð! Ó, herra! Og æðstipresturinn kastaði sér í gólfið með kveinstöfum, °g hann reif hár sitt og klæði, og hann barði líkama sinn með Svipu. hað var sem kaldur gustur færi um salinn, það var sem Veggirnir mæltu ókunnum tungum, og það var sem dauðir hlutir yrðu lifandi og ósáttir. Þá myrkvaðist ásjóna konungsins, og hann reis úr sæti sínu °g mælti: ~~ Takið svikarann, bindið hendur hans og fætur og berið hann út í frumskóginn og skiljið hann þar eftir, svo að hann Seti kynnzt mildi Ijónsins og kærleika sjakalans. En á meðan hinn aldni þulur, Míþrades Kapía, var færður 1 hönd, sungu prestamir lofgjörð til dýrðar konungi himin-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.