Eimreiðin - 01.07.1957, Síða 16
168
EIMREIÐIN
En það er margt um manninn á svona stað,
og meðal gestanna er sífellclur þys og læti.
Allt lendir í stöðugri keppni um að koma sér að
og krækja sér í nógu þægilegt sæti.
En þó eru sumir, sem láta sér lynda það
að lifa úti í horni, óáreittir og spakir,
því það er svo misjafnt, sem mennirnir leita að,
og misjafn tilgangurinn, sem fyrir þeim vakir.
En mörgum finnst hún dýr þessi hóteldvöl,
þó deilt sé um, hvort hótelið sjálft muni græða.
En við, sem ferðumst, eigum ei annars völ.
Það er ekki um fleiri gististaði að ræða.
Að vísu eru flestir velkomnir þangað inn,
og viðbúnaður, er gestirnir koma í bæinn,
og margir í allsnægtum una þar fyrst um sinn.
En áliyggjan vex, er menn nálgast burferðardaginn.
Þá streymir sú hugsun nm oss sem ískaldur foss,
að allt verði loks upp í dvölina tekið frá oss,
er dauðinn, sá mikli rukkari, réttir oss
reikninginn yfir það, sem var skrifað hjá oss.
Þá verður oss ljóst, að framar ei frestur gefst
né færi á að ráðstafa nokkru betur,
því alls, sem lífið lánaði, dauðinn krefst,
í líku hlutfalli og Metúsalem og Pétur.
Þetta kvæði er ekki síður gimilegt til fróðleiks. Að vísu er
það ekki á námsskránni. En illa er komið þeim kennara, sem
þrælbindur sig við námsskrá, hversu góð sem liún kann að
vera. — Og viðhorfin eru ólík. Þegar Björn segir:
Ég skal þarfur þrífa
þetta gestaherbergi,
eljan hvergi hlífa
sem heimsins góður borgari, —
segir Tómas:
Allt lendir í stöðugri keppni um að koma sér að
og krækja sér í nógu þægilegt sæti.