Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1957, Side 18

Eimreiðin - 01.07.1957, Side 18
170 EIMREIÐIN ur. Og svo er koinið, að flestir eru orðnir óhæfir til að skemmta s é r. Skemmtunin er orðin markaðsvara og oft svikin. Víða hefur þetta þær afleiðingar, að félagslíf allt er drepið í dróma. Fólk nennir ekki að leggja neitt á sig. Það er þægilegra að fara í kvikmyndahús en að fórna tíma til að undirbúa skemmtanir við erfiðar aðstæður. Og margir hafa vart komizt í kynni við þá ánægju, sem fólgin er í því að vinna að skapandi félagsstörfum. Á þessu sviði eiga ís- lenzkir skólar mikið verk óunnið. Einn þáttur þess er að venja nemendur á að njóta þess að fara með íslenzkt mál, laust og bundið. Bókmenntanámið getur verið mjög fjölbreytt og ánægju- legt, ef vel er á haldið og tími nægur. Það getur þroskað og skerpt skilning nemendanna. Ég nefni dæmi: Kennarinn fjöl- ritar vísu eða kvæði, sem ber glögg einkenni ákveðins höf- undar. Auðvitað rná það einnig vera sögukafli. Hinum fjöl- rituðu blöðum er síðan dreift meðal nemendanna. Þeir eiga svo að leiða rök að, hver höfundurinn sé og jafnvel, ef um brot er að ræða, úr hvaða kvæði eða sögu hið fjölritaða efni sé. En minnist þessa: Það efni, sem notað er til þessara hluta, verður að bera glögg einkenni höfundar síns, en má þó ekki vera öllum kunnugt. Til dæmis um vísu, sem tilvalin er til þessa, má nefna: Veikur maður, hræðstu eigi, lilýddu, hreyk þér eigi, þoldu, stríddu. Þú ert strá, en stórt er drottins vald. Hél og fár þér finnst á þínum vegi; fávís maður, vittu, svo er eigi, haltu fast í herrans klæðafald. Lát svo geisa lögmál fjörs og nauða, lífið hvorki skilur þú né hel: Trú þú: — upp úr djúpi dauða drottins rennur fagrahvel. Hrúpir Höfði, dauðr er Þengill, hlæja hlíðir við Hallsteini.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.