Eimreiðin - 01.09.1974, Page 11
EIMREIÐIN
— Að vissu marki. Að minnsta kosti lienda „art brute“
myndir hans til þess, að liann liafi viljað láfa slikt í veðri vaka.
í seinni tið bregður þar fyrir ýmsu, sem kemur mjög á óvart,
en gæti þó verið i nánum tengslum við liugmyndir, sem Legér
liafði áður fyrr haft í lituðum höggmyndum, sem liann gerði.
ABSTRAKTLIST.
Iívers vegna taka menn að mála abstrakt? Nn hefnr i mynd-
list ætíð verið fólgin einhver saga, söguefni.
— Sagan, eins og hún var hjá Delacroix og Daumier, er búin
að vera, frá og með Cézanne. Hjá Cézanne koma í staðinn hálf-
vísindalegar hugmyndir um frumhyggingaratriði sýnilegs veru-
leika, sem ætla mætti, að væru meira í ætt við hugsunarhátt
heztu manna þess tíma en þeirra, sem áður voru og liétu.
Hvað tekur við af söguefninu?
— Myndin sjálf. Reynt er að einangra hin myndrænu gildi
með hliðsjón af sýnilegum veruleika. í kúbismanum er loka-
stig þessarar þróunar. En áhrifanna frá Cézanne gætir áfram
í verkum heztu listamanna í Frakklandi og víðar um heim.
Að lokum gætti þeirra einnig i abstraktmálverkinu, og vegna
áhrifa frá Cézanne og impressionistunum gæti það upphaflega
hafa orðið til. Vitanlega er þetta þróun, sem gerist af ýmsum
ástæðum og með ýmsu móti, en ekki stökkbreyting.
En slíta abstraktmálarar sig ekki að einhverju leyti úr tengsl-
um við náttúruna?
— Hvað mig snertir, eru oftast tengsl við nátlúruna. Fremur
eru þau þó ljóðræn en að atriðin hvert um sig tákni þetta eða
hitt í náttúrunni: Afstæði atriða, sem mynda spennur og hreyf-
ingar. Svo gerði ég áður fyrr fígúratívar myndir og er nú hyrj-
aður á því aftur. Við skulum vona, að þar þekki hver sinn hlut.
Þegar myndlistarmenn taka að setja á þennan veg saman
liti og form, sem er nokkuð i ætt við skreytingar, — hvernig
getur slík list vakið það. sem nefna mætti „dýpri iilfinningar"?
— Ég álít, að dýpri hvatir hræri góðan Fstamann en viljinn
til að skreyta. Þótt ýmsum, sem horfa á non-objektíva abstrakt
mynd, virðist, að þar sé einvörðungu uin skraut að ræða og
öll tengsl við umhverfið horfin, þarf ekki svo að vera, nema
að hún sé eftir einhvern hjána. Mynd af bví tagi eftir góðan
listamann hýr yfir verðmætum fyrir áhorfandann, því aðeins
að liann liafi hæfileika og þekkingu til að njóta þeirra. Það mun
nokkuð algengt. þegar myndir Remhrandts eru skoðaðar, að
niönnum veitist örðugra að komast í samband við málarann
Rembrandt en andlitin, sem hann málaði. í jieim er svo sannar-