Eimreiðin - 01.09.1974, Page 13
EIMREIÐIN
listinni. Vini mínum var þetta óskiljanlegt og fannst skrýtið,
að ég lield. En við áttum reyndar eitt sameiginlegt: að vera
sérstaklega slakir í stærðfræði. Einu sinni sem oftar hittumst
við svo hér á götu, orðnir rígfullorðnir menn, og minnist vinur
minn á tónlistaráhugann í mér i þá góðu gömlu daga og livort
ég liafi aldrei vitað, að tónlist sé reist á stærðfræði! Svo mörg
voru þau orð. Hugmyndir þeirra, sem semja tónlist, eru ekki
stærðfræðilegar í eðli sinu. Þannig verður tónlist heldur ekki
skilin á stærðfræðilegan hátt. Ég lield, að skilningur á góðri
abstraktmynd nú sé nær því að vera skilningur á myndlist,
þrátt fyrir allt.
ÞJÓÐERNI, TRÚ.
Var fyrritímalist þjóðlegri en abstraktlist? — Ihín sótti fyrir-
myndir sínar í náttúruna og söguna. Er abstraktlist ekki alþjóð-
leg?
— Þjóðerniseinkennum í myndlist hefur gjarnan verið rugl-
að saman við það, sem mynd er af. Þannig gat það verið, að
Bandaríkjamaður málaði mynd af þarlendri götu eða öðru
257