Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1974, Page 14

Eimreiðin - 01.09.1974, Page 14
EIMREIÐIN amerísku, sem fyrir bar, en væri liins vegar liðtækur „fransk- ur“ impressiónisti i myndrænni viðleitni sinni (Prendergast). Ameríkumenn höfðu sem sé ekki eignazt þjóðlega myndlist (nema primitiva, sprottna af rótum almúgafólks í Gamla heim- inum og svo auðvitað indíánalist). Þeir létu sér nægja að kalla málara á horð við Winslow Homer þjóðlegan og trúðu því margir, að hann væri listamaður. Það var ekki fyrr en um miðja þessa öld. að þeir eignast nærri því þjóðlega myndlist, sem verður alþjóðleg, svo að segja um leið, abstraktexpressíón- ismann. Deilur hafa j)ó staðið um jjað, hvort liann hafi fyrst orðið til ‘í New York eða í Lundúnum. „Frönsk myndlist4 getur að nokkru talizt frönsk, en hún er einnig i mörgu orðin alþjóðleg. Fjarlægðirnai eru ekki eins miklar og áður. Vanda- málin eru almennt orðin alþjóðlegri og sameiginleg. Tíminn liður hraðar. Tafnframt áhrifum frá Matisse, Braque og fleiri frönskum málurum fram eftir öldinni, auk áhrifa frá Picasso, sem hvað mest kveður að, eru að verki á sama tíma önnur álirif, frá dadaistunum Picabia og Duchamp, sem nú i seinni tíð eru orðin svo almenn, að mörgum finnst jaðra við mengun. (Ducliamp: yfirskeggið og hökutoppurinn, sem liann teiknaði með blýanti á eftirprentunina af Mónu Lisu, salernisskálin og fleiri þess háttar hugdettur). Grjótgarðar og moldarhrúgur eru nú algeng fyrirbrigði í sýningarsölum viðast hvar og afsprengi jiessarar hugdettudýrkunar, sem einhverjum datt i hug að gæti hafa orðið til vegna misskilnings á verkum Matisse og Picassos og löngunar til að kollvarpa þeim. Þjóðleg menningarviðleitni virðist ekki vera stunduð að ráði nú á dögum, nema jiá e. t. v. í bókmenntum. Að minnsta kosti hef ég séð illa hlaðinn grióf- garð i sýningarsal í Hollandi, en moldarhrúgu til sýnis hér. Grjótgarðurinn hefði kannski fremur átt að vera hér og mold- arhaugurinn í Hollandi vegna landkosta þar og grjótsins hér. — Eða hvað? Ætli jieim sé ekki sagt að stunda „j)jóðlega“ lisl i Rússiá? Finnst ]>ér, að „frumlci1dnn“ skipti ekki máli? —- Menn mega ekki verða of flatir fvrir einhverjum kenn- ingum, sem auk jiess eru farnar að láta á sjá. Menn verða að Iifa í jiví, sem þeir eru og aðrir hugsa og eru að gera, lifa sinn eigin tima og tjá jiað í verkum sinum. Hugdetta, sem lifir í sjálfri sér, eins og hjá Duchamp, er lítilmótleg. Renoir gamli sagði um þetta: ,.Að vera málari er að vita, hvar þú ert i röð- inni, eins og þegar heðið er eftir mjólk.“ Menn fara bara í röð og vita, að þar eru þeir. Og vita jiað. Það er ekki verið að finna neilt upp, nema að jivi leyti sem áhrif frá öðrum listamönnum

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.