Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1974, Page 16

Eimreiðin - 01.09.1974, Page 16
EIMREIÐIN ég hafði teiknað þar. Mér hefur ætíð fundizt, að geómetrískar myndir eigi að nota í samhandi og samræmi við byggingarlist, til þess að halda áfram með og undirstrika ýmis atriði innan húss sem utan. Geta aðrar listgreinar, svo sem bókmenntir eða tónlist, orðið uppspretta myndlistar? Ætti einbver þeirra að skipa æðri sess en myndlistin? — Ekki vil ég nú segja það, svo að seinna atriðinu sé svarað. Ég get sjálfur orðið fyrir áhrifum af tónlist Beethovens, sem skila sér í mynd. Þegar ég les Brekkukotsannál Halldórs Lax- ness, fæ ég t. d. ekki varizt þvi, að í liugann komi tónverk Mozarts. ÍSLENZKIR MÁLARAR Er til eitthvað, sem kalla mætti íslenzka myndhefð? — Ég hygg, að svo sé ekki. Að vísu var mjög ánægjulegt að fá sýninguna á íslenzkri myndlist í 1100 ár núna í sumar. Menn gera sér þá grein fyrir, að alltaf liafa verið gei’ðar myndir í þessu landi. Einnig rennur upp fyrir mönnum, sem tilbeðið lxafa sem goð Ásgi’inx og fleiri og skrifað um myndlistarbækur, að hann málar sína Heklumynd 1906; van Gogli lxafði þá eytt sínu lífi, Cézanne er dáinn og Malisse málar stóru myndina í Barnessafninu, Joie de vivi'e. Nútíminn kemur hins vegar ekki fyi’ir alvöru til Islands fyrr en með Þorvaldi Skúlasyni og þá aðallega vegna áhrifa frá Braque og Picasso upp úr 1930. 'Hverjnm eldri málaranna kynntist þú? — Það var mjög takmai’kað, sem unnt var að sjá af verkum jxessara manna á árunum, áður en ég fór vestur. Ég kynnt- ist Scheving dálítið og Þoi’valdi Skúlasyni allvel. Hann hafði mikil áhrif á mig. Ég komst einnig i kynni við Snorra Arin- hjarnai’, sem mér fannst mikill málari. Mér finnst Scheving liafa lagt of mikið upp úr því, sem nefna nxætti „sentimental values“ í mynduni sínum. Beztu myndir hans eru klippimynd- irnar og smámyndirnar, — aðallega þær eldri. Svavari kynnt- ist ég ekki fyrr en eftir sti’ið. Afstaða lians var svipuð afstöðu „Cobi'a“manna, sem liann sýndi með, — mjög nýstárleg og eftirtelctarverð. LISTAMAÐURINN OG ÞJÓÐFÉLAGIÐ. Getur listamaður í raun verið annað en einstaklingshyggju- maður? — Ekki er erfitt að svara þessari spurningu. Það liggur í augum uppi, að listamaður getur aldrei verið annað en ein-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.