Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1974, Side 26

Eimreiðin - 01.09.1974, Side 26
EIMREIÐIN Á þennan hátt eiga markaðsöflin að tryggja hagkvæmustu nýtingu fjármagns og vinnuafls, sem hugsanleg er, og þar með mestu hugsanlega framleiðslu. Framfarir, t. d. ný tækni, auka í bili arðsemi viðkomandi atvinnugreinar, rétt á meðan verið er að draga þangað fjármagn frá stöðnuðum atvinnurekstri, en koma síðan neytendum til góða í lækkuðu vöruverði.3 Samkvæmt þessum hugsunarhætti á ríki, t. d. ísland, um- fram allt ekki að vernda einstakar framleiðslugreinar gegn er- lendri samkeppni, t. d. með tollum. Þess í stað á að vernda at- vinnulifið í heild með réttri gengisskráningu. þ. e. a. s. þeirri gengisskráningu, sem jafnar gjaldeyristekjur og gjaldeyrisút- gjöld. Jafnvel þótt útlendar ríkisstjórnir séu svo óupplýstar að styrkja einhvern óhagkvæman rekstur í sínum löndum og undir- bjóða þannig íslenzka framleiðslu, t. d. skipasmíði, þá eigum við bara að vera fegnir að fá ódýr skip. Okkar skipasmíða- stöðvar yrðu að lækka verðið líka, myndu tapa i nokkur ár og fara svo á hausinn. Á meðan liefðu okkar hagkvæmustu at- vinnuvegir eflzt og þjóðin í heild grætt á skiptunum.4 Þó geta aðstæður verið slíkar, jafnvel i draumaþjóðfélagi frjálshyggjunnar, að markaðsöflin beini fjárfestingu inn á óarðbærar brautir. Eitt dæmi um slikar aðstæður er það, þeg- ar arðsamur atvinnurekstur er reistur á auðlind, sem þegar er fullnýtt. Þetta getur t. d. átt við fiskimið, þegar komið er að mörkum ofveiði. Þá er svo komið, að aukin sókn borgar sig ekki, því að aflinn getur ekki aukizt að ráði. Samt getur borg- að sig í bili fyrir einn útgerðarmann að auka sókn sína; hann tekur bara aflann frá hinum. Þeir svara þá í sömu mynt, fá sér stærri skip og betur búin tækjum, og þannig koll af kolli, þar til arðsemi sjávarútvegs er komin niður í meðallag og hætt að draga að sér nýja fjárfestingu. Þá er aflinn i bezta falli litið eitt meiri en hann var, þegar ofveiðin hófst, en eins getur liann verið orðinn miklu minni, ef veiðarnar eru farnar að harnla klaki fisksins eða hann er allur tekinn hálfvaxinn. f þessu dæmi hefur fjárfestingu verið kastað á glæ. f stað þess að auka framleiðsluna til Iiagsbóta fyrir heildina hefur hún farið í gagnlausa og jafnvel skaðlega samkeppni. Til að koma í veg fyrir slíka sóun þarf að gera undantekningu frá reglum frjálshyggjunnar og grípa fram í fyrir markaðsöflun- um. Þetta dæmi má með réttu heimfæra upp á þjóðarbúskap ís- lendinga. Eins og við vitum eru margar okkar framleiðslu- greinar smáar í sniðum og heldur dýrar í rekstri miðað við það, sem bezt gerist erlendis. Þar á móti kemur afburðafram- 270

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.