Eimreiðin - 01.09.1974, Side 39
EIMREIÐIN
Ég segi þér ekki af honum meir,
yfir um klungur, fen og leir
rennur hann eins og rakki.
Þessar vísur úr kvæði, sem talið hefur verið eftir Stefán
skáld Ólafsson (en það er nú dregið í efa) hafa flogið mér í
hug, þegar ég hef litið á auglýsingar um nýja bíla. Bíllinn hef-
ur að verulegu leyti gegnt liinu forna hlutverki hestsins nú
síðustu áratugina og væri af því einu ekki kynlegt, þótt híla-
salar nútímans liafi tileinkað sér að nokkru sölutækni hesta-
kaupmannanna. Hér verður þó ekki farið lengra út í þessa
sálma, aðeins vakin atliygli á þvi, að þegar nýr bíll er keypt-
ur og seljanda er bent á þá galla, sem kaupandi finnur, þá er
svarið oftast á þá lund, að þetta sé komið á skrá og verði bætt,
stundum mun reyndar boðinn afsláttur. Ýmsar spurningar
vakna varðandi þetta atriði, t. d. hvort tryggingar bæti slikan
skaða, en svo hefur mér stundum skilizt. Ef það er rétt, virð-
ist eðlilegra og meira í samræmi við hina marglofuðu þjón-
ustu við viðskiptavini, að seljandi sýni kaupanda skrá þessa,
enda virðist naumast ástæða til að ætla, að seljandi heri hag
tryggingafélagsins meira fyrir brjósti en hag viðskiptavinar,
nema einhverjir sérsamningar séu milli hans og félagsins um
iðgjöld. Hér hlýtur að vera um talsverðar fjárhæðir að ræða,
enda ekki ástæða til að ætla, að kaupendur finni alla galla á
þeim bíl, sem þeir festa kaup á.
283