Eimreiðin - 01.09.1974, Page 54
EIMREIÐIN
SR. GUNNAR KRISTJANSSON
Bókmenntir og trúarbrögð
I.
Það er stundum talað um hið heilaga og hið veraldlega sem
tvö aðskilin svið. Venjulega kemur hið heilaga í lilut kirkj-
unnar, en hið veraldlega í annarra lilut utan veggja kirkj-
unnar. Orðið „heilagur“ merkir „frátekinn“, eitthvað, sem er
utan hins veraldlega og óliáð því, en getur samt brotið sér
leið inn í það. Hið heilaga er það svið, þar sem fengizt er við
spurningar um lífið og dauðann, tilgang og innihald. Hið ver-
aldlega fæst við þá hluti, sem gerast í tíma og rúmi.
Á miðöldum gerðist allt líf manna í náinni snertingu við
hið heilaga, reyndar má segja, að allt líf í Evrópu hafi gerzt
undir hinu breiða hvolfþaki kristinnar kirkju. Eftir boguin
þess mikla þaks beindust allar greinar vísinda og lista að ein-
um punkti. Lífið allt var „heilagt“. Smám saman réttast bog-
arnir og gliðna og hinar ýmsu greinar vísinda og lista bein-
ast elcki að einu marki, heldur stefna liver sína leið. Listm
þjónar ekki lengur hinu heilaga frekar en öðru, liún verður
„listin fyrir listina“ eða fyrir þjóðfélagið. Vísindi og listir eru
orðin „veraldleg“.
298