Eimreiðin - 01.09.1974, Side 63
ÉIMREIÐlN
JÓN HAKON MAGNÚSSON
Detente - ímyndun eða
raunveruleiki?
Er orðið „detente“* tízkuorð heimsmálanna eða lykillinn að
varanlegum heimsfriði? Þetta er sennilega spurning, sem marg-
ir velta fyrir sér, enda hefur orðið „detente“ verið mikið notað
i skrifum fjölmiðla um alþjóðamál undanfarin ár. Það má
raunar segja, að „detente“ hafi orðið fleygt (í heimsmálunum)
eftir að samvinna Richards M. Nixons, fyrrum Bandaríkjafor-
seta, og Leonids Brésnéfs, aðalritara sovézka kommúnista-
flokksins hófst fyrir alvöru til að hæta samhúð risaveldanna.
Nixon fór fyrst til Moskvu, þar sem hann ræddi við Brésnéf
um tilraunir stórveldanna til að bæta sambúð austurs og vest-
urs með það fyrir augum að draga úr viðsjám á alþjóðavett-
vangi og tryggja þannig varanlegan frið í heiminum. Viðræður
leiðtoganna um „detente“ héldu áfram, þegar Brésnéf fór
skömniu síðar í fyrsta sinn í opinbera heimsókn til Bandaríkj-
anna. Árangur fundanna var mikill, og fle.si benti til þess, að
„detente“ væri að verða að raunveruleika og skammt væri að
bíða varanlegs heimsfriðar. Eitt síðasta verk Nixons, áður en
hann varð að biðjast lausnar vegna Watergatemálsins, var að
fara í annað sinn í heimsókn til Moskvu til enn frekari viðræðna
um þetta mikilvæga mál. Gerald Ford, Bandaríkjaforseti, fór
*„Detente“ er franskt orð sem þýðir „batnandi sambúð“ í alþjóðamálum.