Eimreiðin - 01.09.1974, Qupperneq 74
EIMREIÐIN
SAMSTARF I ORKUMÁLUM
I sögu hverrar þjóðar markar áunnið frelsi ávallt tímamót,
þótt framvindan verði síðan með ýmsu móti. I stjórnmálaum-
ræðum samtímans deila menn gjarnan um það, hvort tiltekin
atriði skerði frelsi, fullveldi eða sjálfstæði þjóðar eða stofni
því í voða. Það vill þá oft gleymast, að engin þjóð er lengur
frjáls í bókstaflegum skilningi. Engin þjóð er sjálfri sér nóg
um aðdrætli eða menningarstrauma, engin þjóð er óliáð því,
sem gerast kann utan landamæra hennar. Þróun efnaliags- og
gjaldeyrismála, fæðuöflunar — og mengunarmála — eða ör-
yggis- og stjórnmála, eru ekki einkamál neinnar einnar þjóðar
eða heimshluta, heldur mótar beint eða óbeint atburðarásina
um allan heim. Það er lenzka öfgahópa i ýmsum löndum að
telja þátttöku í ýmiss konar milliríkjasambandi horfa til skerð-
ingar á fullveldi eða sjálfstæði þjóðarinnar, þegar er í raun um
það að ræða að tryggja þjóðinni áhrif og hlutdeild í ákvörð-
unum og framvindu, sem hvort eð er snerta hana jafnt sem
aðrar þjóðir.
íslendingar hafa smám saman brotizt út úr kví landfræði-
legrar, efnahagslegrar, stjórnmálalegrar og menningarlegrar
einangrunar, enda var ])að ólijákvæmilegt i breyttum heimi.
Öll skref, sem stigin liafa verið í þessu skyni. liafa mætt hat-
rammri andstöðu hér innan lands, andstöðu. sem m. a. hefur