Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1974, Side 79

Eimreiðin - 01.09.1974, Side 79
EIMREIÐIN Höfundatal KRISTJÁN DAVÍÐSSON listmálari fæddist í Reykjavík 1917. Hann stundaði nám í myndlist hjá Finni Jónssyni og Jóhanni Briem í Reykja- vík og í Barnes-skóla í Bandaríkjunum 1945—1947. Kristján er nú list- málari í Reykjavík. ÞORVARÐUR HELGASON rithöfundur fæddist 1930 í Reykjavík. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1952, nam síðan árin 1953—1959 þýzku, franskar bókmenntir, leikhúsfræði, leik og leik- stjórn við Vínarháskóla og í París og lauk doktorsprófi í leikhúsfræðum við Vínarháskóla 1970. Þorvarður kennir við Menntaskólann í Hamra- hlíð. Hann hefur gefið út skáldsögu og leikrit og smásögur eftir hann verið fluttar í útvarp og birzt á prenti. HELGI SKÚLI KJARTANSSON fæddist 1. febrúar 1949. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1968, lauk B. A. prófi í sögu og íslenzku frá Háskóla íslands 1972 og stundar þar nú framhaldsnám. Helgi hefur gefið út bækur um sagnfræði og bókmenntir. LÝÐUR BJÖRNSSON sagnfræðingur fæddist 6. júlí 1933 í Bakkaseli í Strandasýslu. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1954, lauk B. A. prófi í sögu og landafræði frá Háskóla íslands 1957 og kandí- datsprófi með íslandssögu sem aðalgrein 1965. Lýður kennir við Verzl- unarskólann. Hann hefur gefið út nokkrar bækur um sagnfræði. PUBLIUS OVIDIUS NASO skáld fæddist í Sulmo á Ítalíu 43 f. Kr. Hann nam lög og mælskulist í Rómaborg og heimspeki í Aþenu. Ovidius bjó í Róm, þangað til Ágústus keisari sendi hann í útlegð árið 8. Hann lézt árið 17, að því er talið er. Ummyndanir Ovidiusar, en efni þeirra sækir hann í gríska og rómverska goðafræði og sagnir, hafa haft mikil áhrif á bókmenntir og listir síðari alda. GUNNAR KRISTJÁNSSON sóknarprestur fæddist á Seyðisfirði 18. janúar 1945. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1965, lauk guðfræðiprófi frá Háskóla íslands 1970 og meistaraprófi frá há- skólanum í Boston í Bandaríkjunum 1971. Gunnar vígðist 1971 til Valla- nessprestakalls og hefur gegnt því síðan. JÓN HÁKON MAGNÚSSON fréttamaður fæddist í Reykjavík 12. september 1941. Hann stundaði nám í stjórnmálafræðum og blaða- mennsku við Macalester College í St. Paul-borg 1 Minnesota í Banda- ríkjunum 1960—1964 og lauk þaðan B. A. prófi 1964. Síðan hefur Jón Hákon aðallega starfað við blaðamennsku og er nú fréttamaður hjá Sjónvarpinu. A #fet»r«jT

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.