Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1980, Page 22

Ægir - 01.09.1980, Page 22
Anders Endal vék að því í fyrirlestri sínum, að mjög erfitt væri að fá menn til að breyta frá hefð- bundnum venjum og aðferðum í sjávarútvegi og væru menn fastheldnari og íhaldsamari þarágömul vinnubrögð og aðferðir en almennt væri í öðrum atvinnugreinum. Sem dæmi um þetta nefndi hann að allt frá bronsöld hefði öngullinn tekið litlum sem engum breytingum, en alllangur tími er nú lið- inn síðan FTFI hefði sannað að með smávægilegum breytingum á lagi öngulsins mætti auka aflann á línuveiðum verulega. Meðan menn fengjust ekki til að taka upp og breyta jafn einföldum hlut þó að blákaldar staðreyndir lægju fyrir um ágæti hans, þá væri varla við því að búast að útgerðar- og fiski- menn væru fáanlegir til að standa í miklum grund- vallarbreytingum á veiði- og útgerðaraðferðum sínum. Þessar ivær gerðir linuöngla revndust fisknaslar við tilrauna- veiðar FTFI. Umfangsmiklar rannsóknir voru hafnar fyrir nokkrum árum til að upplýsa hvernig fiskar brigð- ust við og veiddust með venjulegum önglum. Við rannsóknirnar var notast við neðansjávarsjón- varpstökuvél og hegðun fjögurra fisktegunda gagn- vart venjulegum beittum krók athuguð, bæði í fiskbúri og sjónum sjálfum. Var gaumgæfilega fylgst með fiskunum meðan þeir voru að kljást við beituna og leiddu þær athuganir í ljós, að fiskarnir festust sjaldnast á króknum við fyrstu atrennu þeirra að beitunni og einkum voru þorsk- arnir færir um að bíta oft án þess að veiðast. Við þessar athuganir kom berlega fram að lögun öng- ulsins var ekki þessleg að hann kræktist auð- veldlega í fiskinn við leik hans að beitunni. Við nánari athuganir og ýmsar tilraunir og breyt- ingar á önglinum, kom í ljós, að lögun önguls- ins þyrfti að vera í megindráttum þannig, að odd- urinn benti á taumaugað, en þó aðeins á skjön við 470 — ÆGIR legginn. Myndin sýnir þær gerðir öngla, sem fiskn- astir reyndust. Við áframhaldandi tilraunir sern fram fóru á fiskimiðunum sjálfum, var farið í þtJa leiðangra þar sem aðaláherslan var lögð á að veiða þorsk, í einum leiðangri var lagt fyrir ýsu og í þeim fimmta var lagt fyrir löngu og keilu. Einn af þorsk- leiðöngrunum var farinn á Lófótvertíðinni, en hinir tveir voru farnir á vorvertíðinni úti af Finnmörk. í Lófótleiðangrinum var gerður samanburður a öngli merktum A á myndinni við hinn hefðbundna öngul (jarn númer 8). Útkoman var sú að öngul' A veiddi 12% betur en hinir. í hinum tveimur þorskleiðöngrunum sem farnu voru úti af Finnmörk var niðurstaðan hins vegar sú að öngull A veiddi milli 33% og 34% betur en hefðbundnu önglarnir. Mismuninn á milli leiðangr- anna við Lófót og Finnmörk má útskýra með því að á Lófótvertíðinni er þorskurinn yfirleitt gráðugu' og kokgleypir oftar en í Finnmerkurmiðunum þegar hann kokgleypir skiptir ekki miklu máli hver lögun öngulsins er. Öngull B veiddi 23% betur en venjulegur öngull í síðasta Finnmerkurleiðangru1' um, en B önglarnir sem þar voru notaðir, voru ekki með oddi sem benti á skjön við taumaugau og töldu þeir er að þessu stóðu að mismunurin11 hefði orðið meiri ef svo hefði verið. Ýsuleiðang' urinn var farinn í júlímánuði á Finnmerkurslóðina' Þá veiddi öngull A 14% og öngull B 10% betur en hefðbundinn öngull. í keilu- og löngulei angrinum komu hinir nýju önglar einna best ut- Riðill í nótaefni hnýttur tneð sexleggjamöskvum.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.