Ægir - 01.12.1980, Page 58
er Húnaröst ÁR-150 sem smíðað var úr stáli í Dan-
mörku árið 1968 og hét þá Gissur hvíti. Árið 1977
var skipið lengt og yfirbyggt af skipasmíðastöð
Njarðvíkur, og í maí á s.l. ári sigldi skipið til Har-
stad í Noregi þar sem skipt var um aðalvél og
skrúfubúnað. Skipið kom til landsins aftur í lok
september og hélt jafnskjótt til loðnuveiða.
í skipið var sett aðalvél frá Bergen Diesel, gerð
Normo LDM-8. Vélin er átta strokka fjórgengisvél
búin afgashverfli og eftirkælingu á fæðislofti sem
skilar 1420 hö við 750 sn/mín miðað við 45°C véla-
rúmshita og 32°C hita á sjó, miðað er við 750 mm
Hg loftþyngd og 60% loftraka.
Brennsluolíunotkun er gefin upp 153g/hö klst
við 100% álag en vélin sem fór i Húnaröst eyddi á
prufuplani 150g/hö klst og er þá miðað við
brennsluolíu með 10100 kcal/kg hitagildi. Vélin
tengist niðurfærslugír með tengsli og skiptiskrúfu-
búnaði frá Volda Liaaen.
Gerð ACC-500
Niðurfærsla 2.52:1
Snúningshraði skrúfu 298 sn/mín
Skrúfa er frá Normo. Skrúfuhausinn er úr rið-
fríu stáli en blöðin úr bronsi.
Gerð skrúfu 54/4
Þvermál skrúfu 2000 mm
Skrúfuhringur er frá A.M. Liaaen
Gerð FN 2000/0.45.
Hægt er að stjórna vél og skrúfu frá vélarúmi
eða brú, þ.e. tengsli milli vélar og skrúfu, skrúfu-
skurði, snúningshraða vélar og einnig er á báðum
stöðum neyðarstöðvun vélar. Þessi stjórnbúnaður
er loftstýrður nema neyðarstöðvunin sem er raf-
stýrð. Með aðalvél og skrúfubúnaði er viðvörun-
arkerfi frá Autromica, gerð KB6 ásamt fjaraflestri
á afgasmælum. Allur sá búnaður, sem fór í Húna-
röst ÁR er framleiddur af áðurnefndum norskum
samstarfsaðilum en ábyrgð á búnaðinum í heild
hefur BMV.
Rétt er að geta þess að Akranesferjan Akraborg
sem smíðuð var árið 1966 hjá Storviks Mek. Verk-
sted og kom hingað til lands árið 1974, er búin
tveim dieselvélum til framdriftar frá Bergen Diesel,
gerð Normo LSCM-8. Vélarnar eru hvor um sig
1040 hö við 750 sn/mín.
Umboðsaðili BMV á íslandi er Vélaverkstæði
Björns og Halldórs, Reykjavík.
Húnaröst ÁR-150 á reynslusiglingu eftir vélaskiptin á s.l. sumri.
674 — ÆGIR