Ægir - 01.02.1990, Blaðsíða 28
80
ÆGIR
2/90
ÁRSVERK í hÐNAÐ11987
tAna&ur ótalinn annars staöar
Plastvöruiönaöur
Ðurstagerö
ákartvörugerö, góömálmasmlöi
Smíöi og viögeröir mœlitækja
Skipasmlöi og skipaviögeröir
Smföi og viögeröir raftækja
Málmsmlöi, vólaviögeröir
Alframleiösla
Kfsiljárnframleiösla
Steinsteypu- og annar stein.iön
Grjót-, malar- og sandnám
Semenlsgerö
Lelr- og postullnsiönaöur
Gleriönaöur
Asfalt- og tjðrupappagerö
Sápu- og þvottaefnagerö
Málningar-, lakk- og llmgerö
Kemfskur undirstööuiönaöur
Gúmmívörugerö, hjólbaröaviög
Skinna- og leöurvöruiönaöur
Bóka- og blaöaútgáfa
Bókband
Prentmyndagerö
Prentun
Pappa- og pappfrsvörugerö
Húsgagna- og innróttingasmföl
Annar trjávöruiönaöur
Framl. á öörum tilb. vefn.vörum
Fataframleiösla
Skógerö og -viögeröir
Veiöarfæraiönaöur
Prjónavönjframleiösla
Ullarþvottur, spuni og vefnaöur
Ol- og gosdrykkjagerö
Annar matvælaiönaöur
Sælgætisgerö
Kexgerö
Brauö- og kökugerö
Niöursuöuiönaöur
Slátrun og kjötiönaöur
2000
2500
3000
Það voru 72 iðnnemar í námi
hjá fyrirtækjum í þessari grein árið
1970 og um eitt hundrað á átt-
unda áratugnum, hjá einungis
tveimur skipasmíðastöðvum. Fram-
farir voru margþættar, verklega og
tæknilega. Nú er hinsvegar fjöldi
skráðra nema í stálsmíði á öllu
landinu einungis 27 talsins og
starfsemi stöðvanna er fyrir neðan
hættumörk. Augljóst er hvert
stefnir um þessar mundir. Þrjár
stöðvar hafa verið lýstar gjald-
þrota, nokkrar sagt upp starfs-
mönnum sínum en auk þess hafa
sumar af betri vélsmiðjum lands-
ins hætt störfum. Ástæðan er að
stjórnvöld hafa stýrt helstu verk-
efnum í nýsmíði úr landi með fast-
gengisstefnu slitinni úr nauðsyn-
legu samhengi við aðra mikilvæga
þætti, hávaxtastefnu og með því
að mæla með því að nýta erlendar
niðurgreiðslur, þótt þær brjóti í
bága við samkomulag milli þjóða,
sem við eigum aðild að.
Þessu stefnuleysi þarf að snúatil
betri vegar. Skipasmíðastöðvarnar
verða líka að efla markaðs-
setningu erlendis, til þess að geta
fyllt upp í skörð sem myndast á
heimamarkaði. Ýmist vegna erf-
iðra ára, þ.e. aflabrests, eða vegna
óheppni stjórnvalda með ákvarð-
anatöku.
Það þarf engar þvingunarráð-
stafanir til þess að íslenskir útgerð-
armenn semji við innlendar
stöðvar, þeir hafa góða reynslu
af innlendri smíði. En það þarf
viöunandi lánafyrirkomulag, svo
sambærilegt sé við aðra.
Það þarf að tryggja að stjórn-
völd stöðvi ekki smíði skipa í
miðjum klíðum eins og átti sér
stað 1983. Kostnað af slíkri tiltekt
getur enginn borgað. Þess háttar
ákvarðanir stjórnvalda virðast ein-
kennast af skammtíma sjónarmið-
um, en þurfa auðvitað að markast
at' víðsýni og langtíma sjónarmið-
um.
Stáliðnaðurinn er stór þáttur
Stáliðnaðurinn er stór þáttur og
mikilvægur í okkar þjóðfélagi,
eins og öðrum tæknivæddum
þjóðfélögum. Það er því mikil-
vægt að búa sæmilega að honum.
StærðarhIutfölI má sjá af súluriti
hér fyrir ofan. Það sýnir ársverk í
iðnaði 1987, og er fengið frá hag-
sveifluvog iðnaðarins.
Geta skal þess að þarna hefur
ársverkum í skipasmíðum fækkað
um sem næst 50% á fáum árum.
Ársverk í áli eru fá í samanburði
við stáliðnaðinn, þótt góð séu
með annarri vinnu.
Hugvit og hagleiki
Andrés Gunnarsson vélstjóri
teiknaði fullburða skuttogara árið
1936, en menn hér voru ekki í
stakk búnir að átta sig á hversu
merkileg uppfinning var á ferð-
inni. Breskt fyrirtæki komst að
hugmyndinni og smíðaði eftir
henni.
Ég nefni þetta vegna þess að ég
tel nokkuð á skorta að við kunnum
að meta og nýta ýmis verðmæti
sem við eigum í fórum okkar en
töpum stundum út úr höndunum,
fyrir skammsýni, eða lítið úthald
Þessari fámennu þjóð veitir ekki
af að nýta eins og unnt er hæfi-
leika sína og kunnáttu. Við
þurfum ekki að ala með okkur
neina minnimáttarkennd gagnvart
vinum okkar og frændum í ná-
grannalöndunum. Nóbels skáldið
að Gljúfrasteini gerði betur en
flestir þeirra. Við höfum hannað
og smíðað betri skip en flestir
þeirra. í stórum hluta flotans eru
vönduð spil smíðuð í Garðabæ
hjá Vélaverkstæði Sigurðar Svein-
björnssonar. Stýrum skútunni lítið
eitt betur, þá mun okkur farnast vel.
Höfundur er tæknifræðingur
og framkvæmdastjóri.