Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.1992, Side 14

Ægir - 01.10.1992, Side 14
510 ÆGIR 10/92 að fengnu sérstöku samþykki ís- lenskra stjórnvalda. Fulltrúar hagsmunaaðila í sjáv- arútvegi tóku þátt í samningavið- ræðunum um gerð samningsins og hafa mælt með staðfestingu hans. Samningurinn verður lagður fyrir Alþingi til staðfestingar. íslensk stjórnvöld tóku virkan þátt í samstarfi við önnur ríki vegna undirbúnings umhverfis- ráðstefnunnar sem haldin var í Ríó. Það verður að segjast að þeg- ar fyrstu drög að ályktunum ráð- stefnunnar bárust til landsins ollu þau ákvæði sem vörðuðu fisk- veiðar okkar miklum áhyggjum. Þar voru í fyrirrúmi þau andnýt- ingarsjónarmið sem hafa einkennt störf sumra öfgahópa sem kenna sig við umhverfismál. Allt stefndi í sömu átt, hvort heldur voru á- kvæði um nýtingu einstakra teg- unda, notkun veiðarfæra eða veiðiaðferðir almennt. Til allrar hamingju tókst að snúa þessari þróun við á undir- búningsfundum ráðstefnunnar. Þar var að þakka góðri samvinnu umhverfis-, utanríkis- og sjávarút- vegsráðuneytanna, hagsmunaað- ila í sjávarútvegi og annarra sem létu sig málið varða. í lokaskjali Ríó-ráðstefnunnar er því sú meg- inregla staðfest að allar auðlindir hafsins beri að nýta á skynsam- legan hátt. í starfi á vettvangi umhverfis- ráðstefnunnar studdu íslendingar tillögur um viðbrögð við ofveiði á úthöfum sem hefðu áhrif á fisk- veiðar innan lögsögu strandríkja. Þar áttust við annars vegar ríki sem veiða fjarri heimaslóðum, eins og ríki Evrópubandalagsins og Japan og hins vegar ríki sem telja sig hafa oróið fyrir tjóni af völdum þessara veiða, eins og t.d. Kanada og Nýja-Sjáland. Á Ríó-ráðstefnunni var sam- þykkt að boða til alþjóðaráð- stefnu á vegum Sameinuðu þjóð- anna í því skyni að takast á við þessi vandamál. Islendingar hafa tekið virkan þátt í undirbúningi þessarar ráðstefnu, m.a. á sér- fræðingafundi á vegum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Samein- uðu þjóðanna í síðasta mánuði. íslensk sendinefnd tók einnig þátt í fjölmennri ráðstefnu um sjávarútvegsmál sem haldin var í Cancun í Mexíkó í maí sl. í boði þarlendra stjórnvalda. Á ráðstefn- unni var samþykkt yfirlýsing um ábyrga stjórn fiskveiða sem ætla má að verði stefnumótandi fyrir fiskveiðiþjóðir heims. Eins og fyrri ár hafa hvalveiði- mál verið ofarlega á baugi. Svo sem alkunna er ákvað ríkisstjórn- in að Island segði sig úr Alþjóða hvalveiðiráðinu. Eftir að ráðið á- kvað á fundi sínum 1982 að stöðva hvalveiðar í atvinnuskyni hefur komið æ betur í Ijós að hagsniunir íslands fara ekki leng- ur saman við þá stefnu sem er alls ráðandi innan stofnunarinnar. Á- kvörðun ríkisstjórnarinnar tók mið af skýrslu nefndar sem ríkisstjórn- in hafði skipað til að athuga ýrnsa þætti varðandi hugsanlega ur' sögn. Úrsögnin tók gildi 30. junl 1992 og var hún kynnt á ársfundi hvalveiðiráðsins í Glasgow. Á fundinum tilkynntu Norö- menn að norsk stjórnvöld hefðu ákveðið að heimila hvalveiðar i atvinnuskyni á næsta ári, en Norðmenn mótmæltu ákvörðu11 ráðsins um hvalveiðibann á s|n' um tíma og voru því ekki bundmr af henni. Úrsögn íslands og ákvörðu'1 Norðmanna ollu fjaðrafoki meða fundarmanna en umfjöllun t)01 miðla var mun skynsamlegri en áður hafði tíðkast. Að mínu ma(l skipti hér miklu máli niðurstaöa Río-ráðstefnunnar. Segja má a staða hvalveiðiráðsins sé lakari °8 áhrifamáttur þess minni nú el1 verið hefur. Það var sérstakt fagnaðaretm þegar ný samtök um verndun on nýtingu sjávarspendýra í Norður Atlantshafi, NAMMCO, vorU stofnuð með samningi sem und1 ritaður var í Nuuk í apríl sl. Sto n fundur samtakanna var haldinn Þórshöfn í Færeyjum í síðasta mánuði. Stofnaðilar eru Færeyjar' Grænland, ísland og Noregur- s^ lensk stjórnvöld vænta góðs ^ starfi samtakannu, enda Ijóst a svæðisbundið samstarf er v3S[^ legra til skynsamlegs árangurs e það starf sem unnið hefur ver^ fram til þessa á vettvangi Alþl0 hvalveiðiráðsins. Af þessu er Ijóst að margt he u_ áunnist í hvalveiðimálum °^ar^ þessu ári þótt ekki sé hægt ‘ segja að endanlegur sigur se^ sjónmáli. Það er nauðsynleg1 . halda áfram á sömu braut í Þel fullvissu að fyrr eða síðar mu skynsamleg stefna hvað var nýtingu auðlinda hafsins ver °faná' , ., , vió Af framansögðu ma sja ao

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.