Ægir - 01.10.1992, Blaðsíða 52
548
ÆGIR
10/92
Ottó Wathne NS 90
25. ágúst sl. kom skuttogarinn Ottó Wathne NS 90 í
fyrsta sinn til heimahafnar sinnar. Seyðisfjarðar. Skut-
togari þessi, sem áður hét Grinnöy, er keyptur notað-
ur frá Noregi, en er smíðaður árið 1991 (afhentur í
apríl) hjá skipasmíðastöðinni Construcciones Navales
Santodomingo S.A. í Vigo á Spáni, smíðanúmer 636
hjá stöðinni. Skipið er hannað af Nordvestconsult A/S
í Álesund í samvinnu við Cramaco A/S í Tromsö.
Skipið er með búnað til heilfrystingar á afla og kem-
ur í stað eldri skuttogara útgerðar, sem bar sama
nafn, Ottó Wathne NS 90 (1474), 299 rúmlesta skut-
togara, smíðaður árið 1977. Jafnframt gengur endur
nýjunarréttur Erlings KE 45 (1361) upp í nýja sk'P' ’
328 rúmlesta nótaveiðiskip, smíðað árið 1969 (sö
árið 1990). Áður en skipið kom til landsins voru 9er
ar ákveðnar breytingar á því af núverandi eigendun1_
m.a. fjölgað hvílum í eins manns klefum, sett i skip
flotvörpuvinda og bakstroffuvindur og bætt við tsekju^
i brú. Hinn nýi Ottó Wathne er smiðaður i EO-klassa’
þ.e. vaktfrítt vélarúm. ■
Ottó Wathne NS er í eigu samnefnds hlutafélags
Seyðisfirði. Skipstjóri á skipinu er Páll Ágústsson oy
yfirvélstjóri Víglundur Þórðarson. Framkværndastl
útgerðar er Trausti Magnússon.
Ottó Wathne NS 90 við komu til Seyðisfjarðar. Ljósmynd: Jón Magnússon.