Ægir - 01.10.1992, Blaðsíða 56
552
ÆGIR
10/^2
farshúsi eru fimm tveggja manna klefar og aftast er
hlífðarfatageymsla með salernisklefa.
Bakkaþilfar: Fremst í þessu rými er ókæld matvæla-
geymsla (s.b.-megin) og þvottahús. Þar fyrir aftan,
s.b.-megin, er eins manns klefi, íbúð yfirvélstjóra,
skipt í setustofu, svefnklefa og snyrtingu; eldhús og
borðsalur aftast. B.b.-megin ereins manns klefi, íbúð
skipstjóra, skipt í setustofu, svefnklefa og snyrtingu;
tveir eins manns klefar og aftast sjúkraklefi. Fyrir
miðju í þessu rými eru matvælageymslur (kælir og
frystir) og setustofa, samtengd borðsal, svo og salern-
isklefi.
íbúðir eru einangraðar með 150 mm steinull og
klæddar með plasthúðuðum plötum.
Vinnuþilfar (fiskvinnslurými):
Framan við skutrennu eru tvær vökvaknúnar
fiskilúgur, sem veita aðgang að tvískiptri fiskmót-
töku, aftast í fiskvinnslurými. I efri brún skutrennu er
vökvaknúin skutrennuloka. Fiskmóttaka er klædd
með ryðfríu stáli, og henni lokað vatnsþétt að fram-
an með þili, sem á eru tvær vökvaknúnar fiskilúgur
til losunar.
í skipinu er búnaður til heilfrystingar á bolfiski,
karfa og grálúðu með tilheyrandi búnaði, aðgerðar-
vélum, geymslu- og þvottakörum, færiböndum, vog-
um, pökkunaraðstöðu o.fl. Færibönd, kör o.þ.h. eru
frá Carnitech A/S.
Framan við móttöku er færibandakerfi, sem flytur
að slægingar- og hausunarvélum sem eru fjórar tals-
ins þar fyrir framan. Frá þeim flyst aflinn með
tröppufæriböndum í þrískipt geymslu-/flokkunarkar,
með vökvaknúnum lúgum til losunar. Færibanda-
kerfi flytur aflann frá geymslukari að þvotta- og litun-
arkari b.b.-megin, og frá því með færibandakerfi að
flokkara (flokkunarborði með vigt), vigtarborði og
þaðan með færibandi að frystum. Eftir frystingu fara
afurðir í pökkun, að bindiaðstöðu og að lúgu fyrir
fermingu.
í skipinu eru eftirtalin fiskvinnslutæki: Tvær Baader
159 slægingar- og hausunarvélar fyrir bolfisk, ein
Baader 162 slægingar- og hausunarvél fyrir bolfisk,
ein Baader 424 hausunarvél fyrir karfa og grálúðu,
tvær Marel tölvuvogir og ein Strapack bindivél.
Frystitækjabúnaður er frá Kværner og eru í skipinu
sjö 23 stöðva lóðréttir plötufrystar af gerðinni KKV4-
24-100, afköst 7.5 tonn á sólarhring hver.
í skipinu er ísvél frá Svalbard af gerð SVA DW/S4,
afköst 4 tonn á sólarhring, staðsett í klefa b.b.-megin
á vinnsluþilfari, ásamt ísgeymslu.
Vinnslurými er einangrað með polyurethan og
klætt með plasthúðuðum krossviði.
er
Fiskilest (frystilest):
Lestarrými undir aðalþilfari er um 600 m3 °8
lestin gerð fyrir geymslu á frystum afurðum (-30 ^
Lestin er einangruð með polyurethan og klædd nie
krossviði með glertrefjahúð og kæld með kælile'
um í lofti lesta. í lest er færiband til að flytja afuróir-
Eitt lestarop er aftast á lest, s.b.-megin, með lLIFu
hlera á karmi, en auk þess eru smálúgur fyrir fenl1
ingu og niðurgöngu. Á efra þilfari, upp að lestarWe
á neðra þilfari, er samsvarandi losunarlúga svo og 1
bakkaþi Ifari.
Fyrir affermingu er losunarkrani.
Vindubúnaður, losunarbúnaður:
Vindubúnaður skipsins er vökvaknúinn (lágþð'
kerfi) frá A/S Hydraulik Brattvaag (HydraU^r
Espanola) og er um að ræða tvær togvindur, 'I
grandaravindur, tvær hífingarvindur, bobbingavin^
og tvær hjálparvindur afturskips. Flotvörpuvinda 0
Séð fram eftir togþilfari skipsins. Ljósmynd:
Tæknideild / ER.