Ægir - 01.10.1992, Blaðsíða 24
520
ÆGIR
10/92
en áður eða til 1. marz. Á vertíð-
inni voru aðeins 39% af heildar-
aflanum landað í október og nóv-
ember, en í fjölda ára hefir aðal
veiði- og söltunartímabilið verið í
þessum mánuðum. I desember
var 28% aflans landað og í janúar
og febrúar 33%.
Heildaraflinn á vertíðinni varð
99.377 tonn. Af aflanum fóru að-
eins 19,7% til söltunar. Til fryst-
ingar fóru 21,5% og til bræðslu
58,4%.
Á mynd 1 er sýnt hver þróunin
hefir verið varðandi nýtingu afl-
ans eftir að síldveiðar í hringnót
voru leyfðar á ný eftir veiðibannið
1972-1974.
Söltunin
Heildarsöltunin á vertíðinni
varð 102.988 tunnur eða rúmlega
15% minni en á vertíðinn
1990/91 en þá nam heildarsölt-
unin 122.114 tunnum. Af heildar-
söltuninni voru 40.012 tunnur
ferskflökuð síld og var þar um 7%
aukningu að ræða frá vertíðinni
1990/91 en þá nam söltun fersk-
skorinna flaka 37.418 tunnum.
Síldarsöltunin á vertíðinni fór
fram á 18 höfnum (tafla 1) og var
skráð á samtals 33 söltunarstöðv-
ar (tafla 2).
Útflutningur
Heildarafgreiðsla til erlendra
kaupenda á öllum tegundum salt-
aðrar síldar á vertíðinni 1991/92
nam 93.715 tunnum, þar af voru
34.605 tunnur ferskskorin flök. Af
mismuninum, 59.110 tunnum,
voru um 20 þúsund tunnur af
hausskorinni og slógdreginni síld
teknar til flökunar og roðflettingar
innanlands fyrir erlenda kaupend-
ur eftir að síldin var orðin full-
verkuð.
Samkvæmt tilkynningum sölt-
unarstöðvanna voru auk framan-
greinds magns 6.410 tunnur salt-
Tafla 1 Síldarsöltun á vertíðinni 1991/1992 eftir söltunarhöfnum .
Síld önnur en flök Ferskflökuó síld Samtals tunnur
Þórshöfn — 2.163 2.163
Vopnafjörður 1.749 - 1.749
Seyðisfjörður 7.711 2.901 10.612
Neskaupstaður 5.528 3.818 9.346
Eskifjörður 5.499 9.036 14.535
Reyðarfjörður 1.770 - 1.770
Fáskrúðsfjörður 9.161 2.732 11.893
Breiðdalsvík 1.988 - 1.988
Djúpivogur 3.318 296 3.614
Hornafjörður 12.626 7.872 20.498
Vestmannaeyjar 2.247 4.922 7.169
Þorlákshöfn 848 420 1.268
Grindavík 6.591 5.634 12.225
Sandgerði 68 167 235
Keflavík 1.336 - 1.336
Vogar 537 51 588
Hafnarfjörður 15 - 15
Akranes 1.984 - 1.984
Samtals tunnur 62.976 40.012 102.988
Samtals tunnur árin:
1990/91 84.696 37.418 122.114
1989/90 226.091 14.660 240.751
1988 230.324 11.235 241.559
1987 279.199 10.441 289.640
1986 267.681 10.571 278.252
1985 248.224 10.474 258.698
1984 247.684 6.098 253.782
1983 241.047 4.505 245.552
1982 213.783 13.141 226.924
1981 180.491 3.210 183.701
1980 258.983 10.345 269.328
1979 168.399 22.147 190.546
1978 182.507 11.910 194.417
1977 152.086 — 152.086
1976 124.013 — 124.013
1975 94.407 - 94.407
aðar fyrir innlenda aðila á vertíð-
inni.
Almennt um síldarsöltunina
Því hefir oft verið haldið fram,
að engin atvinnugrein sé jafn á-
hættusöm og tvísýn og síldarsölt-
unin. Ástæðurnar eru margar og
flóknar en þó einkum tvaer- n
ars vegar skyndilegar brey1'^'
sem annað veifið verða á si
stofnunum og göngum síldar
ar, og hins vegar afar sveiflu 'el
markaðsástand.
Við íslendingar höfum trá > ^
un síldveiða hér við land upp11
margar kollsteypur
bæði
hvau