Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Blaðsíða 8
inu ekki ofviða. Þá eiga heima í því fregnir af aðgerðum
dómstóla landsins, af setningu mikilvægra laga og af að-
gerðum framkvæmdavaldsins um framkvæmd laga, t. d,
skattstjórnvalds o. s. frv. Þá eiga heima í tímaritinu grein-
argerðir um lögfræðirit, sem út koma hér eftirleiðis, eink-
um þau er ritstjórn þess kunna að véí’ða send, minningar
dáinna lagamanna, sem að hefur kveðið í starfi þeirra eða
þjóðfélagsmálum annars. Rökræður um lagasetningu og
lagaskýring á auðvitað að veita rúm í tímaritinu, ef þær
fullnægja sjálfsögðum skilyrðum uih efni og búning,
enda er ritinu ætlað að verða laust við áróður flokkspóli-
tísks eðlis. Loks eru fregnif, sem sérstaklega varða félags-
skap lögfræðinga og laganema, lagakennslu og lagapróf.
Það er mér auðvitað ofra'un að greina nákvæmlega allt
það, sem tímaritinu hæfir, en hér hefur verið reynt að
draga aðalmarkalínur um efni þess.“
Þessi orð get ég gert að mínum. Mér er auk þess hug-
leikið, að ritið verði nokkur tengiliður.milli erlendrar lög-
fræði og innlendrar og stándi jafn föstum fótum í sög-
unni og nútímanum.
Um efni þessa heftis skal þess getið, að fyrrv. ritstjóri
he’fur aflað þess að mestu leyti.
TheocLór B. Líndal.
2