Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Blaðsíða 42
ræða, skal þó ekki refsað, neraa sakborningur 'hafi fyrir-
fram vitað um, eða hafi haft fullkomna ástæðu til að ætla,
að hann mundi fremja brotið meðan á áhrifunum stæði,
eða að það mundi leiða af þessu ástandi hans. Ástæðan
fyrir því, að þessi sérstaka grein er sérstaklega tekin mun
vera sú, hve tíð ölvunarbrot eru og mönnum talið það til
sjálfskaparvítis að drekka sig út úr. Þar sem sú skoðun
er nú orðin ríkjandi, að áfengiseitrun, hvort heldur er bráð
eða kronisk, sé sjúkdómur, eins og hver önnur eitrun, hafa
verið sett lög hér á landi um meðferð ölvaðra manna og
drykkjusjúkra, þó að framkvæmd þeirra hafi enn tafizt.
1 öllum þessum tilfellum er spurt um sakhæfi viðkom-
andi afbrotamanna. Það, sem fyrst kemur til greina fyrir
lækninn, er að gera sér ljóst: a) hvort maðurinn fyrst
og fremst sé eða hafi verið haldinn einhverjum ákveðnum
geðsjúkdómi, er hann framdi brotið. Hafi svo verið, þá
hvort verknaðurinn teljist eðlileg afleiðing af geðveikinni,
og ef svo er, þá mun maðurinn sýknaður. En teljist brotið
ekki eðlileg afleiðing af geðveikinni, þá kemur til álita
hvort að refsingu muni eiga við. Er það t. d. svo í þeim
tilfellum, þar sem geðveikur maður drekkur sig út úr og
fremur lögbrot þar af leiðandi.
b) Hafi ekki verið um ákveðinn geðsjúkdóm að ræða á
verknaðaraugnablikinu, kemur til álita, hvort tímabundin
breyting á meðvitundarástandi mannsins hafi samt sem
áður verið fyrir hendi, tímabundin breyting, sem ekki bein-
línis verði talin til ákveðins geðsjúkdóms sem slíks. Eins
og kunnugt er, sveiflar skerpa manns mjög mikið frá degi
til dags, og frá morgni til kvölds. Allir menn fá meira og
minna þannig sveiflur í athyglisskerpunni, að þeir eins
og hálfdotta eða jafnvel hálfgleyma sér öðru hverju. 1
sunium tilfellum eins og hálfgleyma menn sér eða algleyma
sér augnablik, svo að ástandið oft getur minnt á smáflog eða
einkenni þau við flogaveiki, sem nefnd eru petit mals eða
absense. Standi svona athyglisgloppa lengur en það eina
eða þau fáu augnablik, sem hún venjulega gerir, getur svo