Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Blaðsíða 54
Aðalbrot þau, sem um hefur verið að ræða, hafa verið:
Af þessum mönnum voru:
Normal. Fávitar. Geðveilir. Geðveikir. Alkoholistar.
Kynferðisglœpir 25 13 5 0 6 1
ÞjófnciOir alls 13 5 3 3 2 0
Slagsmdl og ofbcldi alls 13 8 1 0 2 2
Svik og prettir 7 1 2 3 0 1
Innbrot alls 6 2 0 2 0 2
flcveihja alls 3 0 0 0 1 2
Afengi var ekki með i spilinu i 30 tilfellum af þessum 67
— — með i spilinu, en ekki aðalorsök i í 13 — — — —
— — sennilega með i spilinu, en
sennilega þýðingarlaust ... .. . i i 16 — — — —
— — aðalorsök i 8 —
Þó að fjöldi rannsóknanna sé allmismunandi ár frá ári,
hafa þær þó verið- að meðaltali 1 á móti 13 dæmdum síðan
1948. Það lítur út sem sakadómarinn í Reykjavík telji þær
til nokkurs gagns, og er ekki óhugsandi, að þær hafi m. a.
orðið til þess, að sumir hinna 32 ósakhæfu skv. rannsókn-
inni, hafi sloppið við að verða ranglega dæmdir. Margir
dómarar munu þeirrar skoðunar, að heldur beri að sleppa
jafnvel 10 sekum en dæma 1 saklausan.
Þó að geðheilbrigðirannsóknir gerðu ekki annað en að
l’orða einstaka manni frá óréttlátum dómi, þá réttlætir það
eitt þær að margra áliti. Þá er ekki ólíklegt, að þær geti orðið
nokkur liður í viðleitninni til þess að skilja afbrot sumra
manna, og síðast en ekki sízt, til þess að gera sér grein
fyrir, hvaða árangurs megi vænta af refsingum eða þeirri
meðferð, sem dómarinn telur, að viðkomandi afbrotamaður
ætti að sæta.
48