Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Blaðsíða 14
hins eiginlega ríkissjóðs. Hins vegar eru ekki teknar í
fjárlög nema nokkrar ríkisstofnanir. Aðrar ríkisstofnanir
eru utan fjáriaga. Að meginstefnu til mun það sjónarmið
ráða, hvort ríkisstofnanirnar hafa sjálfstæðan fjárhag,
aðskilinn hinum eiginlega ríkissjóði, eða arður þeií'ra renn-
ur beint í ríkissjóð. I síðartalda tilvikinu eru stofnanirnar
teknar á fjárlög en ekki í hinu fyrrnefnda. Samkvæmt
þessu sjónarmiði er það eðlilegt, að t. d. áfengisverzlun og
tóbakseinkasala séu teknar á fjárlög, en bankar ríkisins séu
utan fjárlaga. 1 öðrum tilvikum er þetta sjónarmið ekki
látið ráða, og sýnist stundum nokkurt handahóf á því
hverjar ríkisstofnanir eru teknar á fjárlög og hverjar ekki.
Þannig er t. d. Ríkisútvarpið á fjárlögum en Þjóðleikhúsið
utan fjárlaga; ríkisbúið á Bessastöðum er á fjárlögum en
önnur ríkisbú ekki svo séð verði;1) tunnuverksmiðja ríkis-
ins er á fjárlögum, síldarverksmiðjur ríkisins ekki, fjár-
hagsráð og starfslið þess er ekki á fjárlögum o. s. frv. Vera
má, að í sumum tilvikum verði færð einhver rök fyrir
þessum mismun, þótt ég hafi ekki getað komið auga á þau.
En af þessu er ljóst, að mikið af ríkisrekstrinum er utan
fjárlaga. Er og einsætt af því, að fjárlagameðferð veitir
þinginu ekki fullnægjandi aðstöðu til könnunar á fjárhags-
afkomu ríkisins og ríkisstofnana. Fjárlagameðferðin gefur
því þinginu ekki færi á að hafa áhrif á rekstur einstakra
ríkisstofnana eða til að fylgjast með fjármeðferð þar.
Þessa staðreynd verður að hafa í huga, þegar athugaðar
verða þingkjörnar stjórnarnefndir hér á eftir.
i) Á þessu hefur oröið breyting síöan erindiö var ílutt. t nefndar-
áliti frá meiri hluta fjárveitinganefndar um frumvarp til fjáriaga
fyrir 1954 segir: „Nú sem áöur er rekstraráællun rikisbúsins á Bessa-
stööum tekin i fjárlagnfrv. Telur nefndin sjálfsagt aö taka í fjárlög
einnig áætlun fyrir önnur rikisbú. Hefur nefndin gert ráöstafanir til
þess aö fá þær rckstraráætlanir og mun væntanlega bera fram brtt.
um þaö efni.viö 3. umr. frvl"', sbr. Alþt. 1953 A deild, bls. 549. Upp i
fjárl. fyrir 1954 eru samkv. þessu tekin önnur ríkisbú, sbr. 3. gr. fjárl.
nr. 87/1953. Tekju- og gjaldaáætun hvers bús er þó ósundurliðuð.
8