Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Blaðsíða 64
24. gr. 1. um kosningar til Alþingis nr. 80, 7. sept. 1942,
enda skal fylgja reglum þeim, er þar greinir við forseta-
kjör, sbr. 1. og 6. gr. 1. nr. 36, 12. febr. 1945, og einnig við
bæjar- og sveitarstjórnarkosningar, sbr. 14. gr. 1. nr. 81,
23. júní 1936.
Kjörskrá til alþingiskosninga semja bæjarstjórnir í
kaupstöðum og hreppsnefndir í hreppum. Skulu þær samd-
ar í febrúarmánuði ár hvert og gilda frá 15. júní það ár
til 14. júní næsta ár á eftir, 14. gr. kosnl., en reglulegar
alþingiskosningar fara fram síðasta sunnudag júnímán-
aðar um land allt fjórða hvert ár, 59. gr. kosnl., nema þing
sé rofið, en þá koma til aðrar reglur. Forsetakjör skal og
fara fram síðasta sunnudag júnímán., nema forseti falli
frá eða leggi niður embætti á kjörtímabilinu. Við kjör
forseta skal fara eftir gildandi kjörskrám yfir alþingis-
kjósendur, 1. gr. k nr. 36, 12. febr. 1945.
Kjörskrár til bæjarstjórnar- og hreppsnefndarkosninga
semja einnig bæjarstjórnir í kaupstöðum og hreppsnefndir
í hreppum. Þær skulu og samdar í febrúar ár hvert, sam-
tímis því sem kjörskrár fyrir alþingiskosningar eru samd-
ar, 11. gr. 1. nr. 81, 1936. Bæjarstjórnarkosningar og
hreppsnefndarkosningar í þeim hreppum, þar sem fullir
% hlutar íbúanna eru búsettir í kauptúni, fara fram síðasta
sunnudag í janúarmánuði, en aðrar hreppsnefndarkosn-
ingar síðasta sunnudag júnímánaðar, 4. gr. 1. nr. 81, 1936.
Kosning sýslunefnda fer fram samtímis hreppsnefndar-
kosningum og gildir sama kjörskrá við hvorttveggja, 34.
gr. 1. nr. 81, 1936.
Kjörskrár fyrir bæjarstjórnar- og hreppsnefndarkosn-
ingar, þar sem kosningar fara fram í janúarmán., gilda frá
24. jan. næsta ár eftir að þær eru samdar til 23. jan. næsta
ár þar á eftir, en i öðrum hreppum frá 24. maí það ár, sem
þær eru samdar, til 23. maí næsta ár á eftir.
Frá því kjörskrá er samin og þangað til hún gengur í
gildi, skal almenningur eiga aðgang að staðfestu eftirriti
af henni hjá oddvita eða bæjarstjóra, 18. gr. 1. nr. 80, 1942,