Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Page 17
alþingis til sölu fasteigna ríkisins. tJm slíkt geta þó skoð-
anir verið skiptar.
En auk þess á alþingi með enn öðrum hætti hlut að
stjórnvaldsathöfnum og öðrum ráðstöfunum framkvæmd-
arvaldsins. Alþingi kýs nokkra sýslunarmenn og ýmsar
nefndir eða ráð, sem fara með stjórnsýslustörf. Það munu
einkum vera þess konar afskipti alþingis af stjórnarmál-
efnum, sem gagnrýni hafa sætt. ótrú á störfum ráða og
nefnda mun vera býsna almenn, ékki sízt meðal embættis-
manna og annarra fastra opinberra starfsmanna. Á það
ekki aðeins við um nefndir og ráð, sem kjörin eru af al-
þingi, heldur og nefndir, sem skipaðar eru af ríkisstjórn
eða tilnefndar af öðrum aðilum. Það er t. d. ekki góður
vitnisburður, sem slíkar nefndir fá hjá svonefndri sparn-
aðarnefnd, er starfaði hér á árunum 1947 og 48.1) Nefnd
þessi samdi frumvarp til laga um eftirlit með rekstri ríkis-
ins og ríkisstofnana. Lagði hún þar til, að sett yrði á fót
sérstök deild í fjármálaráðuneytinu til þess að hafa þetta
eftirlit á hendi. Forstöðumaður þessarar stjórnardeildar
skyldi skipaður af Forseta Islands. 1 athugasemdum við 2.
gr. þessa frumvarps kemst nefndin m. a. svo að orði:
„Nefndin þykist hafa sannfærzt um, að skipun nefndar til
ýmissa framkvæmda hafi gefið allt annað en góða raun hér
á landi, ekki sízt, ef pólitísk sjónarmið hafa verið einráð
um mannval. 1 nefndum, sem þannig eru skipaðar, gengur
oft illa að samræma ólík sjónarmið. Árangurinn verður svo
hálfkarað verk, sem enginn þykist bera ábyrgð á.“ Vera
má, að hér sé litið full einhliða á málið. En ummæli þessi
eru aðeins nefnd sem dæmi um viðhorf reyndra embættis-
manna til starfsemi ráða ög nefnda, en þess ber að geta,
að þingkjörnar stjórnarnefndir eru ekki nema lítið brot
allra þeirra ráða eða nefnda, sem starfað hafa hér á. landi.
') Fjármálaráðherra skipaði þessa nefnd 22. sept. 1947. 1 henni áttu
sæti skrifstofustjórarnir í atvinnumálaráðuneytinu, fjármálaráðuneyt-
inu og félagsmálaráðuneytinu, rikisbókari og aðalendurskoðandi rik-
isins, Alþt. A, bls. 707, þingskj. 358.
11