Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Side 22

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Side 22
mala'ráð, sem m. a. hefur' á hendi úthlutun styrkja til hámsmanna erlendis og ýmsa aðra ráðstöfun fjár í menn- ingarskyni, svo og nefnd til eftirlits með opinberum sjóð- um. Hér er þess annars auðvitað enginn kostur að telja upp slíkár nefndir svo tæmandi sé, og því síður að gera full- n'ægjandi grein fyrir viðfangsefnum þeirra og starfsemi. En þessi dæmi, sem hér hafa verið talin, bera öll vitni þeiriú meginstefnu, sem áður var getið, að búa myndi að einhverju leyti að baki þessum nefndakosningum. þ. e. vilja alþingis til að tryggjá fjárstjórnar- og fjárveitingar- vald sitt til yztu marka. Með þessari skipan er reynt að samhæfa það vald breyttum aðstæðum. Segja má því, að þéssár þingkjörnu stjórnarnefndir fari, að nokkru leyti a. m. k., með störf, sem eru hluti af eðlilegu verkefni al- þingis. Sé' þannig litið á, verður ekki talið óeðlilegt, að nefndir þessar séu að samsetningu til í samræmi við flokka- skipun á alþingi — sýni rétta mynd af vilja alþingis, eiris og það er skipað á hverjum tíma. Nokkur trygging er óneitanlega í því fólgin, að aðalflokkar þingsins eigi með þessum hætti aðild að þessari stjórnsýslu. Með þessari skipan ætti að vera girt fyrir pólitíska einsýni á þessum sviðum. Eftirlitið ætti að vera öruggara, þar sem hin eiginlega framkvæmdastjórn er ékki aðeins háð eftirliti af hálfu samherja, heldur og pólitískra andstæðinga. Minni hætta er á flokkslegri tortryggni. Skipulag þetta er í sjálfu sér lýðræðislegt. En þótt nokkrir kostir fylgi þessari skipan, og þótt nokk- ur efiiisrök hggi til grundvallar henni, er hitt jafnvíst, að henni fylgja vissir ókostir, sem ekki má loka augunum fyr- ir. Þessi skipan dreifir ábyrgðinni meir en góðu hófi gegnir, eðá ’réttara sagt, hún stofnar oft til samábyrgðar á stjórn- aráthöfnum, hvort sem þær hafa tekizt vel eða illa. Hætt er og við, að stjörnarframkvæmdin verði svifaseinni, þegar fjölskipuð stjórnvöld eiga að annast hana. Þess vegna hafa þessir stjórnarhættir verið gagnrýndir, bæði hér á landi og 16

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.