Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Síða 24

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Síða 24
hafa með höndum sérstaka starfrækslu, þá skyldi ríkis- stjórnin skipa þeim í þann flokk, sem þær stæðu næst um starfrækslu. Síðan er ákveðið, að yfir hvern flokk fyrir- tækja skuli setja þriggja manna ráð, kosið hlutfallskosn- ingu af sameinuðu alþingi. Þessi ráð áttu að hafa með höndum yfirumsjón og eftirlit með starfrækslunni. For- stjórar stofnananna áttu að leggja fyrir það ráð, sem stofnunin heyrði undir, öll mikilsvarðandi mál, er starf- ræksluna vörðuðu, gera grein fyrir innkaupum, starfs: mannahaldi, kaupgjaldi, tilhögun starfs, fjárhaldi, álagn- ingu á vörum o. s. frv. Eins og sjá má af þessu, var ráðum þessum ætlað ærið verkefni. Ráð þessi urðu ekki langlíf í landinu. Er þau höfðu starfað um sex ára skeið, var samþykkt að fresta fram- kvæmd laganna um eftirlit með opinberum rekstri. Síðan voru svo eftirlitsráð þessi afnumin að fullu og öllu með lögum frá 1942. Sjálfsagt hafa breytt pólitísk viðhorf átt einhvern þátt í því, að ráðin voru lögð niður. En víst er um það, að ekki verður séð, að niðurlagning þeirra hafi sætt nokkrum andmælum. Og í greinargerð að frumvarpi að lögum þeim, sem felldu lögin um eftirlit frá 1935 úr gildi, en það frumvarp var samið af atvinnumálaráðu- neytinu, var sagt, að það hafi verið látið í Ijós á alþingi 1940, að reynd væri á það komin, að lítið gagn væri að rekstrarráðum þessum. Ekki verður séð, að þessu hafi verið andæft. Hér verður að sjálfsögðu enginn dómur kveðinn upp um starfsemi þessara ráða. En allt virðist benda til þess, að skipun þeirra hafi ekki reynzt hallkvæm. Líklegt er, að ástæðan hafi verið sú, hve starfssviðið var víðtækt og yfirgripsmikið. Það er hætt við, að nefndir, með svo fjöl- breytilegu og víðtæku starfssviði verði annaðhvort gagns- lausar eða verði stjórnarframkvæmdum þeim, sem þær koma nálægt, óeðlilegur fjötur um fót. Dæmi þetta er rif.jað upp til að sýna, að hér er vandratað meðalhófið. En alþingi verður sérstakiega að gæta þess, að haga aðild 18
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.