Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Side 25

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Side 25
sinni að stjórnsýslunni og eftirliti með framkvæmdar- valdinu þannig, að virk stjórnarframkvæmd sé ekki tor- velduð. Um kosningu þessara þingkjörnu stjórnarnefnda er þess að geta, að það er alla jafna óbundið í viðeigandi lög- um, hvort fulltrúar í nefndum þessum skuli vera alþingis- menn eða ekki. Fer það eftir atvikum, hvort heldur er, en í reyndinni er það tíðara, að ráðsmenn þessir eða nefndar- menn séu utanþingsmenn. Er það önnur regla en í Dan- mörku gildir um hliðstæða aðila. 1 Noregi sýnist reglan aftur á móti vera sú sama og hér, þ. e. að kjörið sé að jafn- aði ekki bundið við þingmenn.1) Þegar alþingi velur utanþingsmenn að trúnaðarmönn- um sínum, er Ijóst að því fylgir það óhagræði, að þeir geta ekki verið til staðar í þinginu til að gefa upplýsingar og svara til sakar, ef því er að skipta. Á hinn bóginn er á það að líta, að alþingismenn eru margir störfum hlaðnir fyrir, og verður þá að hafa í huga, hversu fáum þingmönnum hver þingflokkur hefur á að skipa; að hægara er að velja kunnáttumenn á hverju sviði til þessara starfa, ef kosn- ingin er eigi bundin við alþingismenn, og að þeir, sem í nefndirnar eru valdir, verða trúnaðarmenn flokkanna, enda oft miðstjórnarmenn eða með öðrum hætti nátengdir flokksstarfseminni. Standa þeir því flokkum sínum reikn- ingsskil gerða sinna, hvort sem þeir eru alþingismenn eða ekki. Miðað við íslenzka staðháttu, myndi það því ekki verða til bóta að binda þessi störf við alþingismenn. Þess má geta, að frumkvæði að þingkjöri sumra stjórn- arnefnda hefur í sumum tilfellum komið frá alþingi sjálfu. Slíkt átti sér t. d. stað um tryggingarráð, raforkuráð og ný- býlastjórn. 1 frumvarpinu var gert ráð fyrir stjórnarskip- un eða beinni tilnefningu af hálfu stjórnmálaflokkanna. Enda þótt áðurgreind ástæða, þ. e. ósk alþingis um að hafa hönd 1 bagga með, eða eftirlit með fjármeðferð þess J) Sjá áCurnefndar umræOur á þinginu 1952 í N.A.T. 1952. 19

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.