Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Qupperneq 66
getur einungis sá verið sóknaraðili máls, er sjálfur hefur
kært til bæjarstjórnar út af málsefninu, sbr. upphaf 24.
gr., sem segir, að sá, sem er óánægður með úrskurð bæjar-
stjórnar eða hreppsnefndar út af kæru hans, geti sótt málið
fyrir dómi. Hér koma því aðrir ekki til greina, nema þeir,
sem höfðað geta mál samkvæmt öðrum málslið greinar-
innar, þ. e. án undangengins úrskurðar bæjarstjórnar. Þar
segir, að sá, sem vegna f jarvistar eða af öðrum ástæðum hafi
ekki átt kost á að koma fram með kæru út af kjörskrá áður
en kærufrestur er liðinn, geti sótt málið fyrir dómi, hvort
sem málið varðar hann sjálfan eða ekki. Hver sá, sem upp-
fyllir þessi skilyrði um fjarvistir eða aðrar ástæður, getur
því verið sóknaraðili kjörskrármáls. „Aðrar ástæður“ gætu
ií þessu efni verið t. d. sjúkleiki sóknaraðila, sem varnaði
honum ferlivistar. Ekki segja kosningalögin neitt um það,
hversu lengi þessar fjarvistir eða aðrar ástæður þurfi að
vara. Ekki verður þess krafizt, að þær vari frá því kjörskrá
var samin og þar til kærufrestur er liðinn. Af augljósum
ástæðum mundi það vera of hörð og ósanngjörn regla, enda
þótt rétt sé og heimilt að kæra kjörskráratriði til bæjar-
stjórnar, þegar er samningu kjörskrár er lokið sbr. 18. gr.
kosnl. Að líkindum mundi það einnig vera talin of ein-
strengingsleg regla, að skilyrði til málshöfðunar væri, að
sóknaraðili hefði verið hindraður af fyrrgreindum ástæð-
um allar þær fimm vikur, sem kjörskrá skal liggja frammi,
áður en kærufrestur rennur út. Þetta ætti ekki hvað sízt
við, ef fjarvistirnar eða þær „aðrar ástæður", sem um væri
að ræða, hefðu verið ófyrirsjáanlegar. Þessi atriði verður
dómarinn að meta hverju sinni eftir því sem efni standa til.
Varnaraðili kjörskrármáls er bæjarstjórn eða hrepps-
nefnd „og skal dómarinn skipa mann fyrir hönd þeirrar
bæjarstjórnar eða hreppsnefndar, sem stefnt er“. Skipun
slíks réttargæzlumanns kemur að sjálfsögðu ekki til greina,
ef varnaraðili lætur sækja þing, t. d. ef bæjarstjóri, bæjar-
fulltrúi, oddviti eða hreppsnefndarmaður koma fyrir dóm.
Komi hins vegar til þess, að skipa þurfi réttargæzlumann,
60