Tímarit lögfræðinga - 01.01.1964, Blaðsíða 49
Lagatímarit á Norðurlöndum,
auk nokkurra árböka
(Hbs. merkir, að rilið sé í Háskólabókasafni).
Skrá þessa hefur dr. Björn Sigfússon háskólabóka-
vörður látið i té. Hún ber með sér, að flest ritanna eru
til í bókasafni Háskólans. Ýmis þeirra munu og lil
víðar t. d. í bókasafni Hæstaréttar og í Landsbókasafni.
Einstakir menn munu og vera kaupendur ýmissa rit-
anna. Síðar verður væntanlega birt skrá um önnur er-
lend lögfræðitímarit, sem til eru i söfnum bér.
Það er svo augljóst mál, að varla tekur að nefna, að
sæmilegt safn erlendra lögfræðitímarita er lögfræði-
menntun í landinu brýn nauðsyn. Hins vegar eru mörg
þeirra alldýr. Samvinna um kaup slíkra rita er þvi
nauðsyn og koma þar einkum til greina sem aðilar:
Hæstiréttur, Félagsdómur, Háskólabókasafn, Lögfræð-
ingafélag íslands, Lögmannafélag íslands o. fl. sam-
tök lagamanna, og' Stjórnarráðið.
Arkiv for luftrett. Oslo. -— Hbs.
Arkiv for sjörett. Oslo. — Hbs.
Den civile medicinallovgivning i kongeriget Danmark.
Kbh.
Förvaltningsráttslig tidskrift. Sth. — Hhs.
Grönlands Landsráds forhandlinger. Ivbh.
Juristen. Kbh. -— Hbs.
Jussens venner. Oslo. — Hbs.
Lakimies. Helsinki. — Hbs.
Lov og rett, norsk juridislc tidsskrift. Oslo. -— Hbs.
Timarit lögfræðina
43