Tímarit lögfræðinga - 01.01.1969, Síða 54
Starfsmenn Borgarfógeta hafa einnig skrifstofur úti
um allan bæ, hjá Gjaldheimtunni og tollstjóraembættinu.
Virðast þeir því frekar vera starfsmenn þeirra embætta
en Borgarfógetaembættisins. Út frá sjónarmiði hlutleysis
þess, sem dómsvald á að sýna milli aðilja, er þetta auð-
vitað óheppilegt.
III. Kostir gildandi skipunar.
Kostir gildandi skipunar liggja í sumum sömu hlutum
og gallarnir. Því það sem er galli í einu tilliti getur verið
kostur í öðru.
Litlu umdæmin úti um landið, þar sem öllu er safnað
saman á eina hendi, eru tiltölulega ódýr. Auðvelt er að
fá heildarsýn yfir umdæmið hæði fyrir yfirvöld og al-
menning. Tiltölulega stutt er að sækja til embættisins og
aðeins á einn stað að fara um marga hluti. Sama gildir
um Sakadóm Beykjavíkur, þar er rannsókn sakamála og
ákæruvald í minniháttar málum á sama stað við sama
cmbætti og þau skulu dæmast.
IV. Hver skal vera framtíðardómaskipunin?
Um þetta verkefni verður ekki fjallað nema öðrum þeim
málefnum, sem nú tilheyra sýslumannsembættum, séu
jafnframt gerð einhver skil. Verður hér gerð sú tillaga,
að landinu verði skipt í fylki og innan hvers fylkis mynd-
aður einn fylkisdómsstóll.
a) Þessi fylkisdómslóll dæmi mál í fvrra dómsstigi.
Dómstig verða aðeins tvö, svo sem nú er, fylkisdómur og
Hæstiréttur. Sýslumannsembætlin verði látin haldast sem
slík, en fækkað verulega, og fari með marga þá sömu
málaflokka, sem þau hafa nú á hendi. Greining málefna
milli fylkisdóms og sýslumannsembætta virðist hagan-
legast fyrirkomið þannig:
48
Tímcirit lögfræðinga