Tímarit lögfræðinga - 01.03.1979, Síða 11
son heitið „fungerandi" stjórn til að greina á milli starfsstjórnar og
skipaðrar ríkisstjórnar, en sú grein var birt 1956. Ólafur Jóhannesson
notar heitið „fungerandi“ stjórn innan sviga til skýringar á heitinu
starfsstjórn í bókinni Stjórnskipun Islands, sem fyrst kom út 1960.
I umræðum á Alþingi hafa slíkar stjórnir verið nefndar „framkvæmda-
stjórn“ og „bráðabirgðastjórn“. Hér verður notað heitið starfsstjórn,
þótt Ijóst sé, að það gefur ekki að öllu leyti til kynna eðli þeirrar stjórn-
ar, sem um er rætt, við fyrstu sýn.
3. AÐFERÐIN
1 15. grein stjórnarskrárinnar segir, að forseti skipi ráðherra og
veiti þeim lausn. 1 stjórnarskránni eða lögum eru engin ákvæði, sem
gera greinarmun á verksviði starfsstjórna og skipaðra ríkisstjórna.
Engin ákvæði er heldur að finna um það, hvaða form skuli gilda um
lausnarbeiðnir ráðuneyta.
Yfirleitt verður það séð fyrir, að ríkisstjórn muni biðjast lausnar
eða sé að því komin. Forseti getur gripið í taumana og mælst til þess
við ríkisstjórn, að hún segi ekki af sér, fyrr en ný stjórn hafi verið
mynduð. Þetta gerðist sumarið 1953, þegar Ásgeir Ásgeirsson forseti
mæltist til þess við Steingrím Steinþórsson forsætisráðherra, að stjórn
hans sæti áfram, þar sem „æskilegt væri, að sem allra styst bil væri
milli fullgildra stjórna“, eins og Agnar Kl. Jónsson kemst að orði í
riti sínu, Stjórnarráð íslands (I, bls. 285). Féllst flokkur forsætis-
ráðherra, Framsóknarflokkurinnn, á þessi tilmæli forseta. Baðst ríkis-
stjórnin lausnar á sama ríkisráðsfundi og mynduð var ríkisstjórn
sömu flokka undir forsæti Ólafs Thors formanns Sjálfstæðisflokks-
ins 11. september 1953. Bar stjórnarskiptin að á þann veg, að forseti
féllst á tillögu forsætisráðhen’a um lausn, en sá ráðherra (Hermann
Jónasson), sem sæti átti í fráfarandi stjórn en ekki þeirri nýju, undir-
ritaði síðan fundargerð ríkisráðsins og gekk af fundi, en inn á fund-
inn gengu tveir menn (Ingólfur Jónsson og dr. Kristinn Guðmunds-
son), sem tóku sæti í hinni nýju ríkisstjórn, ásamt þeim, sem eftir
sátu úr fráfarandi ráðuneyti. Var sama ríkisráðsfundi síðan fram
haldið.
Auk þess sem forseti getur þannig mælst til þess, að ríkisstjórn
sitji áfram, þótt starfsgi-undvöllur hennar sé brostinn, þar til ný stjórn
er mynduð, kann ríkisstjórnin sjálf að ákveða að sitja, þannig að hún
sé reiðubúin að víkja, þegar önnur ríkisstjórn er mynduð. I Stjórnar-
ráði Íslands (I, bls. 309) segir, að minnihlutastjórn Emils Jónssonar
5